Fasteignaleitin
Opið hús:05. maí kl 17:30-18:00
Skráð 30. apríl 2026

Kleppsvegur 132

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
57.2 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
53.900.000 kr.
Fermetraverð
942.308 kr./m2
Fasteignamat
47.300.000 kr.
Brunabótamat
29.600.000 kr.
Mynd af Elín Viðarsdóttir
Elín Viðarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2018485
Landnúmer
104468
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
06
Hæðir í húsi
8
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Gluggar / Gler
Nýjir gluggar 2017
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
útfrá stofu
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905, kynna í einkasölu, Kleppsveg 132, 104 Reykjavík;
Bjarta, snyrtilega og rúmgóða 2ja herbergja útsýnisíbúð á 6. hæð í vel viðhaldinni lyftublokk í 104 Reykjavík.
Húsið Kleppsvegur 132-134 hefur fengið gott viðhald undanfarin ár.


- Birtar stærðir skv. HMS: Íbúð er 53,6 fm + geymsla 3,6 fm
- Samtals því 57,2 m2 að stærð
- 6. hæð -óhindrað stórbrotið útsýni - suður svalir
- 2ja herbergja - 1 rúmgott svefnherbergi
- 2018: Skipt um hurðar íbúðar ásamt eldvarnarhurð.
- 2019: Nýtt parket  

- 2024: Eldhús íbúðar endurnýjað og allt rafmagn endurnýjað og rafmagnstafla endurnýjuð.
- 2017: Húsið málað að utan. 
- 2017: Nýjir gluggar í öllum íbúðum.
- 2017: Svalir flotaðar og steyptar. 
- 2017: Sprunguviðgerðir á ytra byrði húss.
- 2018: Ný lyfta.
- 2022: Nýjir dyrasímar.
- 2024: Viðgerð á hitakerfi hússins. Allur miðlægur búnaður hitakerfis uppfærður (m.a. skipt um hitagrind og dælu) og strengloka sett á hverri hæð. 
- 2025: Rafhleðslustöðvar á bílastæði.
- 2025: Stigagangur málaður og teppalagður.


Eignin skiptist í: Forstofu/hol, eldhús, stofu/borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign.
Nánari lýsing: Gengið er inn um sameiginlegan inngang á framhlið hússins og inn á snyrtilegan stigagang með lyftu.
Forstofa/hol: Af stigagangi, parketlagt með fataskáp. Af því er gegnið inn í aðrar vistarverur eignarinnar.
Eldhús: Af forstofu, opið við stofu/borðstofu. Flísalagt með hvítri innréttingu á tveimur veggjum og borðkrók með útsýni. Gott skápapláss með efri og neðri skápum. Gott vinnurými.
Stofa/borðstofa: Í opnu rými. Opið við forstofu og eldhús. Parketlagt og bjart með síðum gluggum, stórbrotið útsýni. Þaðan er útgengt á 5,3 fm útsýnissvalir.
Svefnherbergi: Parketlagt með stórum skáp með rennihurðum.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, baðkar, hvítur vaskskápur og speglaskápur.
Geymsla: Sér geymsla íbúðarinnar er 3,6 fm, staðsett í sameign í kjallara.
Þvottahús: Er í sameign í kjallara. Þar eru vélar í eigu húsfélagsins.  2 þvottavélar og 2 þurrkarar.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymslu er í sameign í kjallara. 

Lóð: Lóðin er stór 17.849 og það er sameiginlegt lóðafélag fyrir Kleppsveg 128-144. Stóra húsfélagið er fyrir Kleppsveg 132-134 og svo fyrir hvern stigagang.

Samantekt: Í heildina er um að ræða vel skipulagða, bjarta og snyrtilega, 2ja herbergja útsýnisíbúð í húsi sem hefur fengið gott viðhald, á besta stað á Kleppsvegi, 104 Rvk.
Góð staðsetning; Öll skólastig eru í næsta nágrenni. Þetta er barnvænt umhverfi með leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla í göngufæri, auk þess sem sundlaugin og Holtagarðar með Bónus, líkamsræktarstöð ofl. er handan götunnar. Góðar hjóla og göngusamgöngur allt um kring. Lystigarðurinn rétt hjá

Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-89805
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/10/201720.750.000 kr.29.500.000 kr.57.2 m2515.734 kr.
14/08/200610.765.000 kr.12.900.000 kr.57.2 m2225.524 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnargata 110
Bílskúr
Skoða eignina Hafnargata 110
Hafnargata 110
415 Bolungarvík
190.5 m2
Einbýlishús
614
246 þ.kr./m2
46.900.000 kr.
Skoða eignina Engjadalur 6
Opið hús:04. maí kl 18:00-18:30
Skoða eignina Engjadalur 6
Engjadalur 6
260 Reykjanesbær
67.6 m2
Fjölbýlishús
211
723 þ.kr./m2
48.900.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Þorrasalir 7
Jón Rafn_vefur.png
Skoða eignina Þorrasalir 7
Þorrasalir 7
201 Kópavogur
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin