Fasteignaleitin
Skráð 17. sept. 2026

Fannborgartangi 14

ParhúsSuðurland/Flúðir-846
164.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
82.900.000 kr.
Fermetraverð
503.951 kr./m2
Fasteignamat
43.100.000 kr.
Mynd af Andrea Ósk Harradóttir
Andrea Ósk Harradóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
Pallur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2533180
Landnúmer
236082
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegt. 2025
Raflagnir
Upprunalegt. 2025
Frárennslislagnir
Upprunalegt. 2025
Gluggar / Gler
Upprunalegt. 2025
Þak
Upprunalegt. 2025
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Ath - Eignin og bílskúr eru skráð á byggingarstigi B2 – fokhelt og matsstigi 5 – tilbúin til innréttingar samkvæmt HMS. ​​​​Eignin verður afhent í því ástandi sem hún er við sölu. Hljóðdúkur er í öllum loftum eignarinnar að bílskúr undanskildum og loftskiptakerfi er í öllu húsinu. Húsið er timburhús, klætt að utan með lituðu báruáli og lituðu timbri í bland. Járn er á þaki og þakkantur klæddur lituðu áli. Gluggar og hurðir eru úr áli og timbri.
Vel skipulagt 164,5 m² parhús með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og rúmgóðum bílskúr á Flúðum.
  • Eignin er boðin til sölu fullbúin á 83,9 m.kr., en einnig er möguleiki á að kaupa hana í núverandi ástandi á 59,9 m.kr.
  • Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi samkvæmt skipulagi.
  • Rúmgóður 38,3 m² bílskúr.
  • Vel skipulögð eign með fjölbreyttum möguleikum.
  • Möguleiki á að kaupa eignina í núverandi ástandi á 59,9 m.kr. og ljúka framkvæmdum á eigin forsendum.
Birt stærð eignar er 164,5 m² samkvæmt HMS.

Nánari upplýsingar veita:
Andrea Ósk Harradóttir Lgf. í  S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Nánari lýsing eignar
Um er að ræða vel skipulagt parhús sem er boðið til sölu fullbúið á kaupverðinu 83,9 m.kr. Seljendur munu annast fullnaðarfrágang eignarinnar samkvæmt nánara samkomulagi um efnisval, útfærslur og afhendingu. Einnig er möguleiki á að kaupa eignina í núverandi ástandi á 59,9 m.kr. og ljúka framkvæmdum á eigin forsendum.

Ath: Myndir af innra útliti eignarinnar eru unnar með gervigreind og eru eingöngu ætlaðar til að gefa hugmynd um mögulegt útlit fullbúinnar eignar. Þær endurspegla því ekki endilega nákvæma endanlega útkomu, enda getur kaupandi haft áhrif á útfærslu og efnisval. Fyrirliggjandi teikningar sýna fyrirhugað skipulag eignarinnar.

Eignin skiptist samkvæmt skipulagi í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Fyrirhugað innra skipulag og frágangur fullbúinnar eignar:
Forstofa: Gert er ráð fyrir rúmgóðri forstofu með fataskápum og innangengi í bílskúr.
Eldhús: Samkvæmt fyrirliggjandi lýsingu er gert ráð fyrir hvítri, höldulausri eldhúsinnréttingu frá IKEA með borðplötu frá Fanntófell og LED-lýsingu undir efri skápum. Eldhústæki eru ísskápur, bakarofn, spanhelluborð og uppþvottavél frá IKEA.
Stofa og borðstofa: Bjart og opið alrými þar sem stofa og eldhús tengjast á skemmtilegan hátt. Útgengt er úr stofu á fyrirhugaða verönd.
Baðherbergi I: Gert er ráð fyrir innréttingu með skúffum og handlaug, handklæðaofni og rúmgóðri walk-in sturtu með sturtugleri. Flísalagt gólf og veggir.
Baðherbergi II: Gert er ráð fyrir innréttingu með handlaug og sturtuklefa. Flísar á gólfi og veggir málaðir.
Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi samkvæmt skipulagi, með fyrirhuguðum höldulausum fataskápum.
Þvottahús: Sér þvottahús með innréttingu, vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Þar er einnig gert ráð fyrir loftræstisamstæðu.
Bílskúr: Rúmgóður 38,3 m² bílskúr með innangengi frá forstofu. Samkvæmt fyrirliggjandi lýsingu er gert ráð fyrir fullmáluðum bílskúr með lökkuðu gólfi og utanáliggjandi rafmagni.
Húsið og lóðin: Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með lituðu báruáli og timburklæðningu. Járn er á þaki og gluggar og hurðir eru úr áli og timbri. Samkvæmt eldri lýsingu er gert ráð fyrir tengingum fyrir jólaljós og lýsingu í þakkanti, þökulagðri lóð og steyptri ruslatunnuskýlu án loka.

Núverandi ástand eignar
Eignin og bílskúr eru í dag skráð á byggingarstigi B2 – fokhelt og matsstigi 5 – tilbúin til innréttingar samkvæmt HMS.
Hljóðdúkur hefur verið settur upp að hluta í eigninni. Sé eignin keypt í núverandi ástandi verður hún ekki afhent með fullfrágengnum hljóðdúk eða loftskiptakerfi.

Staðsetning
Flúðir eru notalegt og fjölskylduvænt samfélag í Hrunamannahreppi, umkringt fallegri náttúru. Á Flúðum er öll helsta þjónusta til staðar, meðal annars leik- og grunnskóli, verslun, sundlaug og íþróttaaðstaða. Staðsetningin hentar því vel þeim sem vilja njóta rólegs og fallegs umhverfis með góða þjónustu í næsta nágrenni.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
38.3 m2
Fasteignanúmer
2533180
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
04
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2025
126.2 m2
Fasteignanúmer
2533180
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
34.790.000 kr.
Lóðarmat
8.310.000 kr.
Fasteignamat samtals
43.100.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eirhöfði 7B íb.701
Efsta hæð
Eirhöfði 7B íb.701
110 Reykjavík
163 m2
Fjölbýlishús
43
1196 þ.kr./m2
195.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Hjallabraut 47C
220 Hafnarfjörður
158,3 m2
Raðhús
43
1068 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hagasel 14
Skoða eignina Hagasel 14
Hagasel 14
109 Reykjavík
176,4 m2
Raðhús
715
623 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Kóngsbakki 6
Efsta hæð
Skoða eignina Kóngsbakki 6
Kóngsbakki 6
109 Reykjavík
158,5 m2
Fjölbýlishús
615
536 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin