Fasteignaleitin
Skráð 3. feb. 2021

Elísabetarhagi 1 íbúð 107

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
109.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
75.900.000 kr.
Fermetraverð
690.628 kr./m2
Fasteignamat
69.050.000 kr.
Brunabótamat
64.800.000 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Byggt 2021
Jarðhæð af 3
Garður
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
2511246
Landnúmer
224252
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
07
Vatnslagnir
2021
Raflagnir
2021
Frárennslislagnir
2021
Gluggar / Gler
Allir gluggar eru timbur-álgluggar
Þak
Steypt loftaplata er fulleinangruð undir þakdúk og hulin með möl
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Steyptar og yfirbyggðar svalir. Stærð svala er skv. teikningum 6,9 m²
Upphitun
Hitaveita, gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
2 - Undirstöður
Kvöð / kvaðir
sjá í eignaskiptasamningi.
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Elísabetarhagi 1 íbúð 107 - Falleg 4ra herbergja íbúð með tveimur baðherbergjum á 1. hæð í austur enda í nýlegu fjölbýli með lyftu í Hagahverfi - stærð 109,9 m²


Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús og stofu í opnu rými, tvö barnaherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi inn af. Eigninni fylgir sér geymsla í kjallara.

Forstofa og gangur eru með vínyl parketi á gólfi og tvöföldum hvítum skáp. 
Eldhús, vönduð hvít innrétting með dökkri borðplötu og þiljum á milli skápa. Uppþvottavél er innfelld í innréttingu og fylgir með við sölu eignar. 
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem er vínyl parket á gólfi og gluggar til tveggja átta. Úr stofu er rennihurð út á steyptar og yfirbyggðar svalir. Hönnun handriðs og svala er með þeim hætti að auðvelt er að koma fyrir svalalokun í framtíðinni. Svalir eru skv. teikningum 6,9 m² að stærð. 
Svefnherbergin eru þrjú, tvö barnaherbergi með vínyl parketi á gólfi og hvítum tvöföldum fataskápum og svo hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi inn af. Góð innrétting er í fataherberginu og á baðherbergi eru flísar á gólfi og hluta veggja, innrétting, upphengt wc og sturta. Stærð herbergja er skv. teikningum 10,1 , 10,5 og hjónaherbergi 18,1 m²
Aðal baðherbergið er með flísum á gólfi og hluta veggja, vandaðri hvítri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, upphengdu wc, sturtu og opnanlegum glugga. 

Í kjallaranum er sér geymsla, skráð 8,1 m² að stærð.
Sameiginleg hjóla og vagna geymsla er í kjallaranum með góðu aðgengi. Lítil bílskúrshurð er inn í rýmið sem auðveldar aðgengi með stærri hluti.

Annað
- Loftskiptikerfi er í íbúðinni.
- Hljóðdempandi plötur eru í loftum í felstum rýmum. 
- Mynd-dyrasími
- Gólfhiti er í íbúðinni. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/10/202458.400.000 kr.66.000.000 kr.109.9 m2600.545 kr.
06/10/202244.150.000 kr.64.000.000 kr.109.9 m2582.347 kr.
14/05/20213.610.000 kr.44.750.000 kr.109.9 m2407.188 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lækjarmói 8 105
Bílastæði
Lækjarmói 8 105
603 Akureyri
104.9 m2
Fjölbýlishús
413
867 þ.kr./m2
90.900.000 kr.
Skoða eignina Smárahlíð 22 F
Efsta hæð
Smárahlíð 22 F
603 Akureyri
92.4 m2
Fjölbýlishús
312
616 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 206 Hlutd.lán
Bílastæði
Opið hús:20. sept. kl 15:00-15:30
Hringhamar 35, íb. 206 Hlutd.lán
221 Hafnarfjörður
109.7 m2
Fjölbýlishús
413
734 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Krókatún 20
Bílskúr
Skoða eignina Krókatún 20
Krókatún 20
300 Akranes
129.8 m2
Hæð
412
445 þ.kr./m2
57.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin