Lind fasteignasala og Rútur Örn Birgisson, lgfs., kynna fallega, bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á annarri hæð við Rauðarárstíg í miðbæ Reykjavíkur.
Íbúðin er 62,1 fm að stærð og fylgja henni tvær sérgeymslur í risi sem eru samtals 4,9 fm.
Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð bæði að innan og utan á undanförnum árum. Árið 2022 voru allir gluggar í íbúðinni endurnýjaðir. Gluggar á austurhlið hússins eru með hljóðeinangrandi þreföldu gleri. Samkvæmt upplýsingum frá eiganda var þak hússins endurnýjað árið 2020 og gluggum í risi skipt út. Dren var lagtárið 2020. Múrviðgerðir á ytra byrði hússins fóru fram á árunum 2011–2012.
Að innan var íbúðin endurnýjuð árið 2017, en þá var lagt nýtt gólfefni á alla íbúðina, eldhúsið opnaði inn í stofu, eldhúsinnrétting og tæki endurnýjuð, baðherbergi stækkað og allt endurgert. Þá voru settir nýir fataskápar í herbergi og rafmagn endurnýjað í eldhúsi og baðherbergi. Sameiginlegur inngangur er einnig út í bakgarð sem snýr í vestur. Þar nýtur sólar frá hádegi og fram á síðdegi á sumrin.
Nánari lýsing: Forstofa: Með eldvarnarhurð út í sameign, harðparketi á gólfi og gengið er þaðan inn í öll rými íbúðarinnar. Stofa: Rúmgóð og björt stofa með harðparketi á gólfi og glugga til suðurs. Eldhús: Harðparketi á gólfi og falleg innrétting með efri og neðri skápum. Spanhelluborð og ofn, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél frá árinu 2017. Gluggi til suðurs. Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með harðparketi á gólfi, góðum fataskápum og glugga til norðausturs. Herbergi: Bjart herbergi með fataskápum og glugga til norðausturs. Baðherbergi: Sandsteinn á gólfi og flísalagðir veggir, upphengt salerni, smekkleg baðinnrétting með góðu skápaplássi, flísalögð sturta með gler hurð og handklæðaofn. Sérgeymslur: Tvær geymslur á geymslulofti í risi, samtals 4,9 fm. Sameiginlegt þvottahús: Í risi þar sem hver íbúð er með sína þvottavél (þvottavél getur fylgt með eftir samkomulagi).
Í framkvæmdasjóði Rauðarárstígs 32–34 eru til rúmar 11.000.000 kr. Fyrirhugað í sumar er að endursteypa tröppur við inngang hússins með hitalögn, gera upp útidyrahurðir og skipta um handrið. Kostnaður greiðist úr framkvæmdasjóði.
Eignin er á eftirsóknarverðum stað í miðbæ Reykjavíkur, þar sem stutt er í alla helstu verslun og þjónustu, Mathöllina á Hlemmi, Sundhöll Reykjavíkur, Klambratún og þá fjölbreyttu afþreyingu sem miðbærinn hefur upp á að bjóða.
Allar nánari upplýsingar veitir Rútur Örn Birgisson lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 869-1031 eða á netfanginu rutur@fastlind.is

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
14/11/2016
20.250.000 kr.
28.000.000 kr.
62.1 m2
450.885 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.