Fasteignaleitin
Skráð 16. apríl 2024
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
97 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
36.100.000 kr.
Fermetraverð
372.165 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
300100324
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Góðar svalir og möguleiki á sér þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FRÁBÆRAR ÍBÚÐIR Í GÖNGUFÆRI VIÐ GOLF, STRÖND OG SKEMMTILEGAN SPÆNSKAN BÆ"

Vandaðar og  fallegar 3ja herb. íbúðir á frábærum stað í lyftuhúsi við La Serena golfvöllinn í Los Alcazares. Göngufæri á fallega strönd og gamla bæinn í Los Alcazares, þar sem svo sannarlega er sál og sjarmi, bátahöfn og skemmtilegt "promenaðe" meðfram ströndinni. Einnig eru fleiri golfvellir í nágrenninu, t.d. Roda Golf, Mar Menor golfvöllurinn, Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin og fleiri. Um 60 mín akstur til Alicante, og ca. 10 mín. akstur til Cartagena, skemmtilega spænska borg.  Fjölbreytt úrval af verslunum og veitingastöðum í göngufæri.

Allar upplýsingr veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.

NÁNARI LÝSING:


Rúmgóðar og vel hannaðar íbúðir í þremur litlum fjölbýlishúsum, þrjár hæðir, tvær íbúðir á hæð.
Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa í vel tengdu rými. Góðar svalir með öllum íbúðunum, og auk þess sér þaksvalir með íbúðum á efstu hæð og sér garður með íbúðum á neðstu hæð.

Sér stæði í bílakjallara og geymsla fylgir öllum íbúðum.
Sameiginlegur sundlaugargarður með góðri aðstöðu.

VERÐ, miðað við gengi 1EVRA=150ISK.
3ja herb íbúð, með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum frá 241.295 evrum (ISK 36.100.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.

Íbúð 86 fm. + svalir 11 fm. = 97fm.
Íbúðum á jaðrhæð fylgir 133 189 fm. sér garður.
Íbúðum á efstu hæð fylgir 45 fm. sér þakverönd.

Íbúðirnar verða afhentar í júní/júlí 2025.

Einstakt tækifæri til að eignast góða íbúð á frábærum stað.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka á góðum kjörum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

Los Alcázares  er mjög vinsæll sumarleyfisbær og þar er góð aðstaða til stunda sjóíþróttir. Einnig er í boði fjölbreytt afþreying og ýmsar skemmtilegar uppákomur allt árið um kring. Gott aðgengi að allri nauðsynlegri þjónustu, s.s. heilsugæslu, apótek, verslanir og fjölbreytt úrval af góðum veitingastöðum og tapasbörum.

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður,  útsýni, air con, bílakjallari, þakverönd, sér garður, strönd, golf,
Svæði: Costa Blanca, Mar Menor, Los Alcazares,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
300100324

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Villamartin
SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Spánn - Costa Blanca
86 m2
Fjölbýlishús
322
410 þ.kr./m2
35.300.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - El Raso
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - El Raso
Spánn - Costa Blanca
78 m2
Fjölbýlishús
322
459 þ.kr./m2
35.800.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR-San Miguel de Salinas
SPÁNAREIGNIR-San Miguel de Salinas
Spánn - Costa Blanca
84 m2
Hæð
423
410 þ.kr./m2
34.400.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Punta Prima
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Punta Prima
Spánn - Costa Blanca
91 m2
Fjölbýlishús
322
416 þ.kr./m2
37.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache