Betri Stofan fasteignasala kynnir til sölu: Rúmgóða og mikið endurnýjaða 83 fm 3ja herbergja íbúð á 4.hæð. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Hiti er í stéttinni í kringum húsið. Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega!
Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign þvottahús og geymsla.
Nánari lýsing:
Forstofa: Parketlögð og með fatahengi.
Eldhús: Rúmgott og með snyrtilegri hvítri innréttingu. Málað gólf. Innrétting í eldhúsi er síðan 2020.
Stofan: Rúmgóð, björt og parketlögð stofa með útgengi á svalir í suður.
Tvö svefnherbergi: Skápar í öðru og máluð gólf.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, snyrtileg hvít innrétting, baðkar og opnanlegum gluggi.
Þvottahús er í sameign húss þar sem hver er með sína þvottavél.
Sér geymsla eru í sameign.
Mjög gott viðhald og samvinna um rekstur húsfélags. Húsgjöld eignarinnar eru ca 32.000 kr á mánuði , innifalið í húsgjöldum er almennur rekstur, hiti á íbúð, rafmagn í sameign, húseigandatrygging og þrif sameignar.
Endurbætur að sögn núverandi eiganda: 2018- 2023, upplistun er ekki tæmandi:
2012- Gólfteppi á Stigagangi keypt og stigagangur málaður
2013- Rafmagnstafla endurnýjuð íbúð og sameign.
2013. Gólfdúkar rifnir af- svenherbergisgólfum X2 bæsuð , Baðherbergi flísar málaðar og gólf sem og öll íbúðin.
2018- Verksýn, Allir gluggar á húsinu, endurnýjaðir, þakjárn, þakrennur endurnýjað ásamt nýjum hurðum á svölum. í hjólageymslu og sorpgeymslu
2019- Nýtt dyrasímakerfi
2020. Nýtt Eldhús-.gólfdúkur af og gólf málað.
2021 -Eldvarnarhurðar settar á allar íbúðir
2022 -Stigagangur málaður og íbúðin máluð.
2023. -Verksýn; Múrviðgerðir á húsi, Drenað í kringum hús, nýjir brunnar og frárennsli endurnýjað, tröppur endursteyptar, fyrir framan og aftan hús.
Snjóbræðslukerf komið fyrir í tröppum og gangstétt við hús.
2024 Gangur, hjólageymsla, þvottahús og þurrkherbergi máluð veggir loft og gólf.
Samkvæmt fasteignamati ríkissins er íbúð á hæð skráð 75,2 fm og geymsla í kjallara skráðar 7,8 fm, samtals 83,0 fm, ásamt sameignarrými í kjallara, þvottahús o.fl