Miklaborg kynnir: Borgartún 24. Þriggja herbergja 80,2 fm íbúð ásamt geymslu og stæði í bílageymslu, merkt B16. Eign merkt 207 er á 2. hæð. Vesturhliðin á húsinu. Eignin skiptist í anddyri, baðherbergi með þvottaaðstöðu, tvö svefnherbergi, eldhús og stofu með svalir til suðurs og 7,8 fm geymslu á jarðhæð. Sameiginlegur þakgarður á 4. 6. og 7. hæðinni.
Einstök staðsetning í hjarta borgarinnar nærri helstu atvinnusvæðum og útivistarmöguleikum.
**Eignir eru tilbúnar til afhendingar við kaupsamning **
Nánari upplýsingar veitir Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Um er að ræða 64 íbúðir, sem eru í mismunandi stærðum, 2ja herbergja til 4ra herbergja íbúðir í sjö hæða nýbyggingu við Borgartún, 105 Reykjavík.
Íbúðum er skilað fullbúnum með öllum gólfefnum; Baðherbergi og þvottahús með flísalögðum gólfum og baðherbergi eru með flísalögðum veggjum upp að lofti á a.m.k tvo vegu. Harðparket er á öðrum gólfflötum ásamt hvítum gólflistum. Í lyftuforrýmum að innan eru veggir sandspartlaðir og málaðir. Í stigahúsum verða veggir spartlaðir og málaðir. Veggir og loft í bílageymslu verða grófviðgerðir og rykbundnir með glæru efni. Gólf í geymslum, geymslugangi, hjóla- og vagnageymslu verða lökkuð. Lagnir verða sjáanlegar í loftum í geymslum. Sameign skilast fullbúin með fullfrágenginni lyftu. Borgartúnið iðar af mannlífi og er steinsnar frá helstu menningarviðburðum borgarinnar.
Nánari upplýsingar er að finna á Heimasíðu verkefnisins.
Nánari upplýsingar veita:
Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Móeiður Svala Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali sími 899-8278 eða moa@miklaborg.is
Þröstur Þórhallsson löggiltur fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 28/09/2026 | 79.500.000 kr. | 303.366.000 kr. | 294 m2 | 1.031.857 kr. | Nei |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
105 | 77,6 | 92,9 | ||
105 | 95,4 | 108,9 | ||
105 | 74,8 | 86,9 | ||
105 | 72,2 | 84,9 | ||
105 | 75,5 | 92,9 | ||
105 | 76,6 | 83,9 |