Fasteignaleitin
Skráð 11. nóv. 2025
Deila eign
Deila

Hvammabraut 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
107.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
605.410 kr./m2
Fasteignamat
60.600.000 kr.
Brunabótamat
56.000.000 kr.
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1985
Þvottahús
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2076319
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Yfirfarið og málað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já, til suðurs
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Eignin er einnig hluti af húsfélaginu Hvammabraut 8 sem þessi yfirlýsing nær ekki yfir. Innheimta húsgjalda fer fram í stigahúsfélaginu.  Á aðalfundi í mars 2023 kom fram að félagið vinnur að láta gera nýja sameiginlega eignaskiptyfirlýsingu fyrir húsfélagið. Stjórn var veitt heimild til að afla tilboða í nýja yfirlýsingu og leggja fyrir húsfund. Sjá nánar aðalfundargerð 21.03.23. Á aðalfundi 2025 var stjórn falið að taka saman hvar leka er að finna í íbúðum og í framhaldinu þarf að leita tilboða í viðgerð til að
koma í veg fyrir frekari skemmdir. Sjá aðalfundargerð 14.04.2025
Gallar
Gólfefni orðin léleg, skemmdir á nokkrum stöðum og blöndunartæki á baði þarfnast endurnýjunar að hluta.
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Falleg og vel skipulögð fjögurra herbergja 107,2 fm. íbúð á 1. hæð. Íbúðin sjálf er 99,4 fm. og skiptist í forstofu, eldhús, sjónvarpshol, borðstofu og stofu með útgengt út á rúmgóðar suður svalir, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og sameiginlegt þvottahús á sömu hæð. Sérgeymsla er staðsett í sameign um 7,8 fm. að stærð. Samtals birt stærð eignarinnar 107,2 fm.

Björt og vel skipulögð eign á fjölskylduvænum stað þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, sundlaug, alla helstu þjónustu og verslanir. Einnig eru falleg útivistarsvæði og miðbær Hafnafjarðar í næsta nágrenni.

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Nánari lýsing:

Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi.
Sjónvarpshol beint úr forstofu er með parketi á gólfi.
Eldhúsið er með fallegri hvítmálaðri innréttingu með ofn í vinnuhæð og flísar eru á milli skápa. Borðkrókur og parket á gólfum.
Stofa og borðstofa er í opnu björtu og parketlögðu rými með útgengt út á skjólgóðar suðursvalir. Nýleg markísa fylgir. Núverandi eigandi setti auka svefnherbergi í stofu, svo einfalt er að taka niður veggi og stækka stofu aftur ef vill.
Svefnherbergin eru þrjú, mjög rúmgóð með parketi á gólfi. Fataskápar eru í hjónaherbergi og öðru barnaherberginu.
Baðherbergi með góðri innréttingu með efri og neðri skápum og flísum á gólfi og í kringum sturtu. Tengi fyrir þvottavél. 
Sérgeymsla er staðsett í sameign um 7,8 fm. að stærð ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu
Þvottahús er staðsett á sömu hæð, sameiginlegt.
Bílastæði eru sameiginleg fyrir framan hús og í kjallara er opin bílgeymsla fyrir íbúa, stæði ómerkt. 

Gerð var ástandsskýrsla um Hvammabraut 2-16 árið 2018 og hefur verið unnið markvisst að endurbótum á húsinu eftir þá skýrslu og er því að mestu lokið í bili. Þak hefur nýlega verið málað, tréverk að utan málað og lagfæringar á svölum að hluta.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
18/09/201936.950.000 kr.37.000.000 kr.107.2 m2345.149 kr.
01/12/201728.550.000 kr.32.000.000 kr.107.2 m2298.507 kr.
29/04/201320.550.000 kr.18.300.000 kr.107.2 m2170.708 kr.
11/12/200617.170.000 kr.18.300.000 kr.107.2 m2170.708 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hjallabraut 5
Skoða eignina Hjallabraut 5
Hjallabraut 5
220 Hafnarfjörður
102 m2
Fjölbýlishús
312
666 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Hörgsholt 29
Skoða eignina Hörgsholt 29
Hörgsholt 29
220 Hafnarfjörður
111.9 m2
Fjölbýlishús
413
607 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Háholt 5
Skoða eignina Háholt 5
Háholt 5
220 Hafnarfjörður
109.1 m2
Fjölbýlishús
312
622 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Álfaskeið 76
Skoða eignina Álfaskeið 76
Álfaskeið 76
220 Hafnarfjörður
90.7 m2
Fjölbýlishús
312
738 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin