Fasteignaleitin
Skráð 8. mars 2026

Skerpluholt 3

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
239.5 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
209.900.000 kr.
Fermetraverð
876.409 kr./m2
Fasteignamat
14.150.000 kr.
Mynd af Hilmar Þór Hafsteinsson
Hilmar Þór Hafsteinsson
Lögg. fasteignasali/leigumiðlari
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2530006
Landnúmer
236784
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Vatnslagnir
Nýtt hús - nýjar lagnir.
Raflagnir
Nýtt hús - nýjar lagnir.
Frárennslislagnir
Nýtt hús - nýjar lagnir.
Gluggar / Gler
Nýtt hús - nýir gluggar.
Þak
Nýtt hús- nýtt þak.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Nýtt 239,5 fm fimm herbergja einbýlishús á einni hæð í byggingu við Skerpluholt 3 í Garðabæ, (Hnoðraholt). Húsið skilast fullbúið að utan og tilbúið til innréttinga að innan. Lóð skilalst grófjöfnuð. Húsið er steinsteypt, byggt úr forsteyptum samlokueiningum og er að hluta til klætt með timburklæðningu. Húsið verður afhent á byggingarstigi 3 með þeim breytingum sem sjá má af skilalýsingu sem er hér að neðan. Eignin er laus til afhendingar fljótlega. Samkvæmt teikningu er gert ráð fyrir þremur svefnherbergjum en auðvelt væri að hafa þau fjögur. Gólfhiti og gólfsíðir gluggar að hluta. Húsið getur verið tilbúið til afhendingar fljótlega. 

Íbúðarrými er skráð 204,3 fm og bílskúr 35,2 fm.

Skipulag eignar:

Komið er inn í anddyri. Inn af anddyri verður þvottahús/geymsla. Alrými sem er um 70 fm gerir ráð fyrir stofu og eldhúsi. Hurð er frá stofurými út á lóð. Við alrými verður aðalbaðherbergi. Hjónasvíta er um 19 fm og skiptist í svefnrými, fataherbergi og baðherbergi. Hurð er úr rýminu út á lóð. Barnaherbergin eru tvö og eru þau bæði 14 fm. Stórt fjölskylduherbergi er fyrir framan barnaherbegi. Þar væri mögulegt að útbúa fjórða svefnherbergið. Bílskúrinn er 35 fm og er innangengt í húsið úr bílskúr. Lofthæð er frá þremur og upp í 4,2 m. Þakgluggi er yfir alrými sem hleypir inn góðri birtu.

Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
 

Almenn lýsing
Húsið við Skerpluholt 3 er einbýlishús á einni hæð. Teiknistofan Sen&Son ehf. er aðalhönnuður hússins.
Húsið er steinsteypt, byggt úr forsteyptum samlokueiningum og að hluta til klætt með timburklæðningu eða sambærilegu efni. Að utan verður húsið ómálað og lóð verður grófjöfnuð.
 
Húsið verður afhent á byggingarstigi 3 með þeim breytingum sem sjá má af skilalýsingu þessari.

Hönnun
Aðalhönnuður hússins er teiknistofan Sen&Son ehf.
Hönnuðir burðarvirkja eru BM Vallá.
Hönnuður lagna er verkfræðistofan NNE verkfræðistofa ehf.
Hönnuður raflagna er Tæknisýn ehf.
   
Ytri frágangur.
Sökklar
Sökklar eru úr forsteyptum einingum frá BM Vallá einingum. Sökklarnir eru samsteyptir á staðnum og einangraðir samkvæmt teikningum.
Útveggir og plötur
Útveggir eru forsteyptar samlokueiningar með stálmótaáferð. Þakplata eru filegranplötur með ásteypulagi og botnplata er hefðbundin staðsteypt plata. Allar einingar og öll steypa kemur frá BM Vallá.
Húsið er ómálað og ekki sílanborið að utan og er með timburklæðningu á hluta veggflata samkvæmt teikningu.
Flasningar á þaki og í kringum útfelldan glugga verða að fullu frágengnar en aðrar flasningar fylgja ekki.
Þak
Þakið er flatt einangrað með EPS einangrun og dúklagt með Flagon PVC dúk frá Fagþak sem sett hefur verið farg og torf ofan á.
 
Gluggar, gler og hurðir
Gluggar, gler og hurðir eru Velfac gluggar en Húsasmiðjan er með umboðið og sér um þjónustu. Gluggar eru álklæddir trégluggar og með þreföldu gleri. Litur á gluggum og hurðum að utan er RAL 7013 en að innan eru gluggar hvítir.
 
Bílskúrshurð
Er frá Hörmann og er í litnum RAL 7013 að utan en að innan er hún hvít í litnum RAL 9002. Hurðin er uppsett og er með mótor. Glófaxi ehf er með umboðið og sér um þjónustu.
 
Frágangur á lóð
Lóð er grófjöfnuð. Lóðin skilast í því ástandi sem hún er við skoðun.
Hæðir fyllinga eru komnar í það horf sem húsið er selt í og frekari hæðabreytingar eða aðlögun að nágrannalóðum skal unnin í samráði við nágranna af kaupendum.
Sorpskýli er ekki komið.
Hjólageymsla er ekki.
 
Innri frágangur
Veggir og loft
Léttir veggir eru uppkomnir samkvæmt teikningum og eru hlaðnir úr milliveggjasteini. Kaupandi skal kynna sér nákvæma staðsetningu veggjanna.
Veggir eru sandspartlaðir og tvímálaðir í hvítum lit nema sjónsteypuveggur sem er skilað ómáluðum. Eins eru veggir í votrýmum ekki spartlaðir og málaðir. Loft eru sandspörtluð og tvímáluð í hvítum lit. Lokaumferð málunar sem og blettspörtlun er ekki lokið. Miða þarf við að eftir að innréttingar hafa verið settar upp þurfi kaupandi að blettspartla og mála síðustu umferð á veggi.
 
Gólf
Gólf fyrir utan gólf á baðherbergjum, þvottahúsi og bílskúr eru flotuð og tilbúin fyrir flest gólfefni þó ekki fyrir gólfefni sem krefjast nákvæmrar flotunnar eins og dúkar.
Lagnir
Gólfhiti er samkvæmt teikningu lagnahönnuðar. Gólfhitalagnir eru lagðar í plötusteypu hússins samkvæmt teikningu. Heimtaugar eru komnar inn í hús og gólfhitinn verður tengdur og hiti kominn á húsið. Hitagrind er fullkláruð en stýrikerfi fyrir gólfhita er ekki innifalið.
 
Raflagnir og lýsing
Raflagnir eru samkvæmt teikningu. Röralagnir vegna raflagna eru komnar í gólf, loft og veggi. Rafmagnsvírar verða dregnir í að mestu leiti og vinnulýsing komin í húsið. Að öðru leiti er rafmagn og smáspenna ófrágengin og er það kaupanda að taka lokaákvörðun um útfærslu.
 
Innréttingar, tæki og flísar
Engar innréttingar fylgja húsinu þar sem það er afhent á byggingarstigi 3. Enginn endabúnaður er kominn. Engar hurðir, engin gólfefni, engin flísalögn fylgir, engin niðurföll komin, engin hreinlætistæki fylgja. Húsið skilast í því ástandi sem það er.
 
 
Opinber gjöld
Seljandi hefur greitt  inntaksgjöld fyrir rafmagn og hita. Húsið skilast á byggingarstigi 3 með þeim viðbótum sem sjást af skilalýsingu þessari. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á.
 
Annað
Búið er að ganga frá loftræstitúðum á þeim stöðum sem þær eiga að vera en að öðru leyti er loftræsting ófrágengin.
Eldvarnarhurð í bílskúr fylgir ekki.
Fyrir afhendingu hússins mun fara fram stöðuúttekt. Eftir það munu allir iðnmeistarar á húsinu sem og byggingarstjóri skrifa sig af verkinu. Það er á höndum kaupanda að finna nýja iðnmeistara og byggingarstjóra að verkinu.
Húsið skilast eins og það er við afhendingu. Aðrir verkliðir eru ekki hluti af þessari skilalýsingu.
 
Fyrirvarar og áréttingar
Lýsingu þessari er ekki ætlað að vera tæmandi um einstök atriði. Athygli skal vakin á því að Admin ehf. áskilur sér allan rétt til að gera útlits, efnis- og tæknilegar breytingar meðan á byggingarframkvæmdum stendur. Þær breytingar munu þó ekki rýra gæði eignarinnar. Kjósi kaupandi að gera breytingar á eigninni verða þær gerðar á eigin ábyrgð í kjölfar afhendingar. Í nýjum íbúðum er mikill byggingaraki í steypuvirkinu. Þessi raki mun hverfa á einu til tveimur árum en það er þó algjörlega háð útloftun í íbúðinni.
Kaupandi skal gæta þess að hafa lokafrágang á vatnshalla í bílskúr og öðrum votrýmum þannig að vatn fari niður í niðurföll en safnist ekki þar sem það getur valdið skemmdum.
Við afhendingu skal kaupandi skoða fasteignina ítarlega. Ef einhverjir ágallar finnast skal kaupandi, áður en hann hefur framkvæmdir í íbúðinni, afhenda fulltrúa Admin ehf. undirritað eyðublað þar sem þessir ágallar eru taldir upp. Með þrívíddarmyndum er reynt að gefa eins góða mynd og hægt er. Allt efni og teikningar og þrívíddarmyndir eru birtar með fyrirvara um hugsanlegar villur.  Ef teikningum og skilalýsingu ber ekki saman gildir skilalýsingin. Seljandi ber ekki ábyrgð á eðlilegri og venjulegri sprungumyndun í múr, steypu og timbri og/eða atriðum sem heyra undir viðhald hússins og almenna umhirðu.
Beri teikningum um útlit og frágang hússins ekki við skrifaðan texta, ræður hinn skrifaði texti.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Holtsvegur 53
Bílastæði
Skoða eignina Holtsvegur 53
Holtsvegur 53
210 Garðabær
136.2 m2
Fjölbýlishús
423
998 þ.kr./m2
135.900.000 kr.
Skoða eignina Furuvellir 13
Bílskúr
Skoða eignina Furuvellir 13
Furuvellir 13
221 Hafnarfjörður
226.6 m2
Einbýlishús
513
692 þ.kr./m2
156.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 7 (202)
Bílastæði
Hraungata 7 (202)
210 Garðabær
116.8 m2
Fjölbýlishús
312
1027 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 7 (204)
Bílastæði
Hraungata 7 (204)
210 Garðabær
128.7 m2
Fjölbýlishús
413
1087 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin