Fasteignaleitin
Skráð 18. júlí 2026

Hallgerðartún 53

RaðhúsSuðurland/Hvolsvöllur-860
152.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
92.900.000 kr.
Fermetraverð
607.984 kr./m2
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
25285408
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í almennri sölu: Hallgerðartún 53 sem er glæsilegt og vel skipulagt endaraðhús á einni hæð í byggingu á fallegum stað á Hvolsvelli. Eignin er 152,8 m2, þar af er bílskúr 30,8 m2. Einstaklega björt og falleg eign, mikil lofthæð, innfelld lýsing, hiti í gólfum, flísalagður bílskúr.  Fallegt umhverfi og glæsilegt útsýni. 

Fyrir nánari upplýsingar eða til að bóka skoðun hafið samband á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105

Húsin eru byggð úr timbri og eru á steyptum sökklum. Húsin eru klædd með Cembrit sementsklæðningu.  Gluggar eru úr timbri, með áli að utan og þreföldu gleri.
Innréttingar og tæki eru innflutt og sérsmíðuð, gólfhiti, parket og flísar á gólfi, yfirfelldar hurðir af vandaðri gerð og sólpallur í suður. Varmaskiptir á neysluvatni og gólfhita.
Lóð er sléttuð og tyrfð og bílaplan hellulagt, ruslatunnuskýli verða frágengin. 
Glæsileg, rúmgóð og vel skipulögð eign með mikilli lofthæð ( 270 cm).  

Nánari lýsing endaraðhúss: 
Forstofa með skáp og flísum á gólfi.
Eldhús er með innfluttri, sérsmíðaðri innréttingu, ljúflokunarbúnaður á skúffum, ledlýsing undir efri skápum, innbyggður ísskápur og uppþvottavél sem fylgir með, bakaraofn og span helluborð með viftu.  Steinborðplötur á eldhúsinnréttingu.
Stofa, borðstofa og eldhús er í opnu og björtu alrými með útgengt á timburverönd í suður.
Baðherbergi er með flísum á gólfi á tveimur veggjum, innbyggt upphengt salerni, walk in sturta og handklæðaofn.
Hjónaherbergi I (16 fm) er með fataskápum, gott skápapláss.
Herbergi II (10,4 fm) með fataskáp.
Herbergi III (10,4 fm) með fataskáp.
Þvottahús með góðri innréttingu og flísum á gólfi, innangengt úr þvottahúsi í bílskúr
Bílskúr með rafdrifinni innkeyrsluhurð ásamt gönguhurð, epoxy á gólfi.
Verönd: Útgengt úr stofu á góða verönd sem snýr í suður sem er 3 metrar meðfram öllu húsinu að bakatil.

Byggingaraðili er SA smíðar ehf sem hafa áunnið sér góðan orðstír fyrir vönduð vinnubrögð og skil á réttum tíma.

Eigninni verður skilað fullfrágenginni að utan sem og innan, með gólfefnum.  Eignin skilast á byggingarstigi 7, matstigi 7.  Fullfrágengin skv. skilalýsingu. Kaupandi mun greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati.  Gatnagerðargjald og tengigjöld veitna eru greidd af seljanda

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eyjaeignir
www.eyjareignir.is

Myndir (11)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Selvogsgata 17
Skoða eignina Selvogsgata 17
Selvogsgata 17
220 Hafnarfjörður
141,8 m2
Fjölbýlishús
845
810 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Hestamýri 1A
Bílskúr
Bílastæði
Hleðslustöð
Opið hús:01. nóv. kl 13:30-14:00
Skoða eignina Hestamýri 1A
Hestamýri 1A
225 Garðabær
164,2 m2
Fjölbýlishús
322
819 þ.kr./m2
134.500.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 24 - 501
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:01. nóv. kl 12:30-13:00
Áshamar 24 - 501
221 Hafnarfjörður
140,9 m2
Fjölbýlishús
423
922 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 7
3D Sýn
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:01. nóv. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Hraunbær 7
Hraunbær 7
110 Reykjavík
165,3 m2
Raðhús
614
822 þ.kr./m2
135.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin