RE/MAX og Oddur Fasteignasali kynna í einkasölu:Glæsilegt 5 herbergja einbýlishús að Neshömrum 4 í Grafarvogi. Húsið er skráð í Þjóðskrá 195 fm, þar af bílskúr 38,1 fm. Búið að útbúa þvottahús í hluta bílskúrs. Húsið samanstendur af fjórum svefnherbergjum, forstofu, stofu, borðstofu, eldhúsi, þvottahúsi, baðherbergi, gestasalerni og bílskúr.
Allar nánari upplýsingar veitir Oddur Fasteignasali, s: 782-9282 eða á oddur@remax.is. SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS Nánari lýsing:Forstofa: flísar á gólfi, gólfhiti og stór fataskápur.
Eldhús: er opið og stórt með flísum á gólfi og gólfhita, gott borð- og skápapláss og innbyggð uppþvottavél.
Stofa og borðstofa: eru í sameiginlegu opnu og björtu rými með parket á gólfi, útgengt á afgirtan stóran pall sem snýr í suður. Mikil lofthæð í stofu.
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf, baðkar, sturta, gólfhiti og opnanlegt fag. Upphengt salerni og innibyggður klósettkassi.
Hjónaherbergi: er mjög rúmgott með stórum fataskáp.
Svefnherbergi: eru 3 til viðbótar, öll rúmgóð með fataskápum.
Gestasalerni: upphengt salerni og innbyggður klósettkassi.
Þvottahús: er stórt, gengið inn af gestasalerni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, opnanlegt fag. Tengi fyrir rafmagnspott. Hægt að ganga inn í bílskúr úr þvottahúsi.
Bílskúr: er rúmgóður með flísum á gólfi, heitu og köldu vatni, gönguhurð og tveimur opnanlegum fögum. Geymsluloft innst í bílskúr sem og ofan á þvottahúsinu sem hefur verið útbúið í hluta bílskúrs. Tvær innstungur fyrir rafbíla framan á bílskúr.
Staðsteypt, vel viðhaldið og vandað hús með valmaþaki. Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu sem rúmar 4 bíla. Staðsett í rólegum botnlanga með opið svæði fyrir aftan húsið. Stutt í bæði leik- og grunnskóla. Vinsæll og skjólsæll staður í Grafarvogi.
Allar nánari upplýsingar veitir Oddur Grétarsson löggiltur fasteignasali, s: 782-9282 eða á oddur@remax.is.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk