Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Hlíðarvegur 40 Ólafsfirði - 7 herbergja útsýnishús - einbýlishús á tveimur hæðum og með innbyggðu bílskúr - Skráð stærð 299,8 m²
* Nýtt þak var sett á húsið árið 2021 og settir hitaþræðir í þakrennur.
* Þegar þakið var endurnýjað voru raflagnir að stærstum hluta endurnýjaðar á efri hæðinni.
* Húsið var málað að utan sumarið 2026 og gluggar og hurðir var málað að utan árið 2023.
* Búið er að endurnýja hluta af gleri.
Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Efri hæð: Forstofa, gangur, eldhús, stofa og borðstofa, baðherbergi, tvö barnaherbergi og hjónaherbergi með fataherbergi.
Neðri hæð: Forstofa, hol, þvottahús, snyrting, þrjú svefnherbergi og tvær geymslur, önnur staðsett undir bílskúr.
Forstofa er með flísum á gólfi. Annar inngangur er á bakhlið hússins, þar eru flísar á gólfi og tvöfaldur skápur.
Eldhús, flísar á gólfi og snyrtileg hvít og beyki innrétting með flísum á milli skápa. Gott bekkjarpláss og borðkrókur með skemmtilegum útsýnisglugga.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með gluggum til þriggja átta og hurð út á steyptar svalir sem eru á hluta af suður og vesturhlið hússins. Teppi er á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, lakkaðri blárri innréttingu, wc og steyptu flísalögðu baði.
Snyrting er á neðri hæðinni með flísum á gólfi, dökkri plastlagðri innréttingu, wc og opnanlegum glugga.
Svefnherbergin eru sex talsins, þrjú á efri hæðinni, tvö barnaherbergi bæði með ljósu plast parketi á gólfi og hjónaherbergi með litlu fataherbergi inn af, einnig með ljósu plast parketi á gólfi. Þrjú svefnherbergi eru á neðri hæðinni, öll ágætlega rúmgóð og með plast parketi á gólfi.
Steyptur og teppalagður stigi er milli hæða.
Þvottahús er með vínyl parketi á gólfi, ljósri innréttingu og skáp og opnanlegum glugga.
Geymslurnar eru tvær, ein innan íbúðar með lökkuðu gólfi og hillum og önnur undir bílskúr, skráð 34,0 m² að stærð með gróf steyptu gólfi og gluggum. Ekki er full lofthæð í geymslunni og er hún kynnt með affalli af íbúðarhúsi. Sér inngangur er inn í geymsluna af baklóðinni.
Bílskúr er skráður 34,0 m² að stærð, með sér gönguhurð og rafdrifinni innkeyrsluhurð. Hiti er í gólfi. Fyrir framan er steypt bílaplan.
Annað
- Hellulögð stétt er með bakhliðhússins og hlaðnar tröppur eru á suðurhliðinni.
- Möl er í baklóðinni.
- Búið er að taka inn ljósleiðra
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.