SKEIFAN FASTEIGNASALA kynnir fallegt og vel skipulagt steinsteypt einbýli við Dynhóll 2, 245 Sandgerði. Húsið skilast á byggingastigi 3 þ.e bygging eða eftir samkomulagi.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 199.0 m², þar af er íbúðarrými um 154,5 m²
Samkvæmt teikningu skiptist innra skipulag í:
Forstofu, eldhús, stofu og borðstofa, hjónaherbergi, 3 barnaherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsla og bílskúr.
Lóð og teikningar
Lóð að Dynhól 2 skilast grófjöfnuð akstursleið bílastæði með toppefni og gönguleið að útidyrahurð einnig. Ídráttarrör verða fyrir snjóbræðslu og útirafmagn .
Jarðvegskift verður 1,5m frá húsi að lámarki Pallur ekki innifalinn.
Skýli fyrir ruslatunnur ekki innifalið
Hönnunn er innifalinn Allar teikningar eru samþykkar af byggingarfulltrúa Suðurnesjabæjar þ.e. aðaluppdrættir og sérteikningar, sökkul teikningar, burðarvirkisteikningar, glugga- og hurðateikningar, lagnateikningar og rafmagnsteikningar.
Gröftur og fylling
Grafið er niður á fast og fyllt í með grófri möl sem er þjöppuð.
Sökklar
Sökklar eru um 600mm háir. Járnabinding er 2xK12 kambstál efst og neðst í sökkli, K10 kambstál í tengijárnum við plötu. Sökkulveggir eru eingraðir að innan með 24kg/100mm plasteinangrun. Steypa er af gerðinni S-25
Botnplata
Einangrun undir plötu er 24kg/m3 100mm plasteinangrun. Járnabinding er 6mm járnamottugrind. Steypa er af gerðinni S-250.
Botnplata er fínslödduð, Kaupandi þarf að flota undir gólfefni.
Lagnir
Skolp, dren-og regnvatnslagnir eru tengdar fráveitukerfi í götu. Búið verður að ganga frá neysluvatnslögnum, rör í rör í gólfplötu og gólfhitalagnir verða frágengnar og tengdar við kistu, kaupendur sjá um stýringar/kerfi vegna gólfhitans, inntaksgrind frá hitaveitu er innifalin enn annan búnaður sem þarf til tenginga er ekki innifalinn .
Ídráttarrör og frárennsli eru út fyrir sökkul fyrir heitan pott í garð .Pottur of stýringar eru ekki innifaldar
Loftræsting
Ekki innifalin nema um það sé samið sérstaklega .
Raflagnir
Inntakstafla fyrir rafmagn verður komin og verða raflagnir frágengnar þ.e dósir rör og barkar í loftum og útveggjum ídráttarvírar verða komnir enn engir rofar eða tenglar innifaldir.
Útveggir
Útveggir eru steinsteyptir 20 cm þykkir og er steypa c/25 einangraðir að utan og klæddir með báruálklæðningu og sparslaðir og grunnaðir að innan
Innveggir
Komnar verða allar veggjagrindur byggðir úr blikkprófílum og osb krossviður beggja vegna sem undirlag undir gifs ,einangraðir ,sparslaðir og grunnaðir
Þak og loft
Þak er byggt upp með kraftsperruþak styrkleikaflokkuðu timbri 25x150 mm timburklæðning á þaki öndunadúkur og 34x70mm öndunargrind og alusink þakstál frá Límtré Vírnet skrúfað á . Þakkantur er klæddur með álklæðningu í saman lit og húsið. Loft verða eingangruð og rakavarnardúkur lagnagrind og gifsklæðning sparslað og grunnað.
Gluggar og hurðir
Gluggar og hurðar eru úr Ál/timbri í gáum lit RAL 7016 að utan en frágangur í kringum glugga og hurðir er úr áli í sama lit og utanhússklæðningin.
Opinber gjöld
Gatnagerðargjöld eru að fullu greidd, þ.a.s. byggingarlóð, gatnagerð, byggingarleyfisgjald og stofngjald holræsa.
Inntaksgjöld vatns, rafmagns og hita eru greidd.
Afhendingartími:
Eignirnar skilast á byggingarstigi c.a. 3 Fullbúin að utan . Afhending c.a. 1.nóv 2025.
Myndir í auglýsingu eru af sambærilegu húsi.
Nánari upplýsingar veitir: Halldór Kristján Sigurðsson fasteignasali sími:6189999 eða halldor@skeifan.is
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 kr fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Skeifan fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.