Fasteignaleitin
Skráð 29. júní 2026

Gissurargata 3

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarholt og Úlfarsárdalur-113
364.1 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
285.000.000 kr.
Fermetraverð
782.752 kr./m2
Brunabótamat
208.400.000 kr.
Margir Inng.
Fasteignanúmer
231882821
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Margir inngangar

Eignamiðlun kynnir:

Sérlega glæsilegt og vel skipulagt einbýlishús á frábærum stað í litlu sérbýlishúsahverfi við Reynisvatnsás. Frábær staðsetning í botni Úlfarsárdals þar sem örstutt er í alla helstu þjónustu, skóla og í góðar göngu- og hjólaleiðir í ósnortna náttúruna. Stutt göngufæri í nýlega sundlaug, Dalslaug og nýja íþróttamiðstöð Fram. 
Húsið er vandað í alla staði í efnisvali. Sigurður Hallgrímsson arkitekt teiknaði húsið og Rut Káradóttir sá um innanhússhönnun. Helgi í Lumex sá um hönnun og efnisval í lýsingu. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar af Smíðaþjónustunni. Björn Jóhannsson landslagsarkitekt hannaði garð.
Eignin er í heild skráð 364,10 fm en einnig eru óskráð rými á neðri hæð sem telja um 120 fm og með þeim rýmum meðtöldum er eignin því alls um 484,1 fm. Aukin lofthæð er í húsinu, lofthæð meginrými efri hæðar er 3,75 metrar. Lofthæð neðri hæðar er 2,8 metrar. 

Seljendur skoða skipta á minni eign.

*Smelltu hér fyrir söluyfirlit*


Efri hæð - Anddyri, stofa, borðstofa, eldhús, gangur, gestasalerni, skrifstofa, hjónasvíta og bílskúr.
Gengið er inn í anddyri með stórum fataskápum með rennihurð. Flísar á gólfi.
Frá anddyri er inngengt í rúmgóðan bílskúr. Bílskúrinn er rúmgóður með rafmagnsdrifinni hurð. Það er geymsla inn af bílskúr með góðu skápaplássi. Heildarstærð bílskúrs m. geymslu er 59,2 fm.
Tvær samliggjandi stofur með mikilli lofthæð. Niðurtekið loft með hljóðgildrum. Arin. Gólfsíðir gluggar eru á tvo vegu inn í rýmið.
Eldhús er opið að hluta yfir í stofu. Sérsmíðaðar vandaðar innréttingar. Steinn á borðum. Vínkælir í eyju. Flísar á gólfi. Útgengt út á verönd frá eldhúsi.
Flísalagður breiður gangur. Við enda gangsins er útgengt á svalir sem eru L-laga meðfram suður- og vesturhlið hússins.
Gestasalerni með flísum á gólfi. Upphengt salerni. Sérsmíðaðar innréttingar.
Rúmgóð skrifstofa með fallegum upphengdum skápum og hillum. Væri einnig hægt að nýta sem svefnherbergi. Glæsileg tvöföld hurð sem nær alveg upp í loft svo hægt er að opna rýmið alveg við gang.
Vel hönnuð hjónasvíta með miklu geymsluplássi. Fataherbergi og baðherbergi innaf svítu. Baðherbergið er rúmgott með opnanlegum gluggum. Flísalagt í hólf og gólf. Sérsmíðaðar innréttingar og bekkur við sturtu. Innbyggð blöndunartæki í sturtu. 
Gengið er niður breiðan stiga á neðri hæð.

Neðri hæð - Gangur, geymsla, þvottahús, sjónvarps/fjölskylduherbergi, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þrjú óskráð rými (gluggalaus)
Komið er niður stigann inn á breiðan gang. Breið rennihurð út á hellulagða verönd frá gangi.
Rúmgott opið rými sem nýtt er sem sjónsvarps/fjölskylduherbergi. Útgengt á hellulagða verönd með heitum potti.
Tvö rúmgóð svefnherbergi, annað þeirra með fataskápum.
Baðherbergið með fallegri innréttingu og vegghengdu salerni, baðkar og rúmgóð sturta. 
Frá gangi er geymsla og inn af henni er þvottahús með miklu skápaplássi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Á hæðinni er ca. 120 fm rými sem er óskráð og er í dag nýtt sem tómstundarherbergi og geymslur. Óskráða rýmið er gluggalaust en með loftræstingu. Ýmsir möguleikar. 

Húsið stendur á snyrtilegri lóð meðupphitað bílaplan sem rúmar vel þrjá bíla. Timburverönd er við inngang við suðurhorn hússins og steyptir skjólveggir. Frá verönd er gengið út á svalir sem eru meðfram suð- og vesturhlið hússins. Einnig er hægt að ganga niður á hellulagða verönd með heitum potti.

Gólfefni hússins er gegnheilt viðarparket á flestum rýmum en á öðrum flísar. Allar innréttingar og hurðir eru sérsmíðaðar. Innfelld lýsing er í flestum rýmum. 

Húsið hefur fengið gott viðhald og er það meðal annars nýlega málað að utan. 

Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í s: 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (55)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Byggðarholt 20
Bílskúr
Opið hús:15. júlí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Byggðarholt 20
Byggðarholt 20
270 Mosfellsbær
180.8 m2
Einbýlishús
614
856 þ.kr./m2
154.800.000 kr.
Skoða eignina Lofnarbrunnur 28
IMG_1592.JPG
Skoða eignina Lofnarbrunnur 28
Lofnarbrunnur 28
113 Reykjavík
213.8 m2
Raðhús
423
758 þ.kr./m2
162.000.000 kr.
Skoða eignina Bugðutangi 2
Skoða eignina Bugðutangi 2
Bugðutangi 2
270 Mosfellsbær
319.6 m2
Einbýlishús
726
Fasteignamat 172.250.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Þorláksgeisli 84
Bílskúr
Þorláksgeisli 84
113 Reykjavík
178 m2
Raðhús
423
786 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin