***Áshamar, 851 Hella***
Eignaland og Jens Magnús lgf. kynna í einkasölu Áshamar. Fallegur sælureitur í sveitinni. Um er að ræða einbýlishús, gestahús og 26,1 hektari af landi. Einbýlið er skráð skv HMS 152,0 fm og er fjögurra herbergja. Gestahúsin eru þrjú (nánari lýsing hérna neðar). Gríðarlega fallegt útsýni er frá bæjarhlaðinu.
Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
Nánari lýsing:Einbýlishúsið:Komið er inn í opna forstofu, þaðan er gengið inn í fallegt alrími með eldhúsi, borðstofu og stofu. Eldhúsið er með rúmgóðri, hvítri og fallegri innréttingu. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi. Úr alrími er gegnið inn í hjónaherbergi, í svefnherbergisholi eru þrjú barnaherbergi og salernisaðstaða. Baðherbergið er með upphengdu salerni, innréttingu, golf sturtu og hurð út í garð. Þvottahúsið er mjög rúmgott, með plássi fyrir þvottavélar og þurkara, ásamt því að hurð er út í garð.
Gestahús 1:Húsið er byggt úr timbri og er með rúmgóðum palli. Eignin er skráð skv HMS 41,6 fm. Komið er inn í andyri og þaðan inn í opið alrími með eldhús aðstöðu og setustofu. Eitt svefnherbergi eru í húsinu ásamt svefnlofti. Svefnpláss er fyrir sex manns. Baðherbergið er með salerni og sturtu.
Gestahús 2:Húsið er byggt úr timpri með palli fyrir framan. Eignin er skráð skv HMS 29,9 fm. Að innan er eldhús krókur, svefnaðstaða fyrir tvo-þrjá og baðherbergi með salerni og sturtuklefa.
Gestahús 3:Húsið er byggt úr timpri með palli fyrir framan. Eignin er skráð skv. HMS 23,8 fm. . Að innan er eldhús krókur, svefnaðstaða fyrir tvo-þrjá og baðherbergi með salerni og sturtuklefa.
- Jörðin sjálf er vel staðsett í Ásahreppi, gott aðgengi og ekki langt að fara frá þjóðveginum sem er gott fyrir áframhaldandi uppbyggingu ferðaþjónustu.
- Búið er að gera og fá samþykkt nýtt deiliskipulag fyrir jörðina. Þar er leyfi til að fjölga ferðaþjónustu húsum um fjögur, ásamt því að byggja hesthús og reiðhöll samtals að stærð 800fm. Einnig er heimild til að byggja töluvert við einbýlishúsið.
- Ásahreppur er að vinna í nýju reiðvega skipulagi fyrir sveitafélagið og á næstunni mun reiðvegur vera lagður við Steinslækinn fyrir neðan bæinn og mun tenging vera leyfð inn á Áshamars land. Við þetta munu reiðleiðir vera frábærar við eignina.
- Veiðiréttur í Steinslæk fylgir með.
Eign sem býður upp á virkilega mikla möguleika.Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasla:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is ***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***