** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Laus straxt - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040- Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **FASTMOS S: 586-8080 kynnir: Fallegt 170,5 m2, 4-5 herbergja parhús með bílskúr við Lyngholt 19 í Vogum á Vatnsleysuströnd. Eignin er skráð 170,5 m2, þar af parhús 143,3 m2 og bílskúr 27,2 m2. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, geymslu með glugga (hægt er að nota sem herbergi), baðherbergi, þvottahús, forstofu, eldhús, stofu, borðstofu og bílskúr. Eignin afhendist fullbúin og er laus við kaupsamning. Lóð er frágengin með hellulagðri verönd, hellulögðu bílaplani og grasi. Snjóbræðsla er í bílaplani með lokuðu frostlaugskerfi.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sentNánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp. Úr forstofu er innangengt inn í bílskúr og geymslu/herbergi.
Stofa/borðstofa er í opnu rými með eldhúsi. Parket á gólfi. Úr stofu er gengið út í garð, þar sem gert er ráð fyrir heitum potti.
Eldhús er með fallegri innréttingu. Í innréttingu er span helluborð, bakaraofn í vinnuhæð, örbylgjuofn og ísskápur. Gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Geymsla er með glugga og flísum á gólfi. Hægt að nýta sem herbergi.
Svefnherbergi nr. 1 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 3 er mjög rúmgott, með parketi á gólfi og fataherbergi/fataskáp
Baðherbergi er flísalagt. Á baði er vegghengt salerni, 'walk in' sturta, handklæðaofn og hvít innrétting. Innaf er þvottaherbergi
Þvottaherbergi er inn af baðherberginu.
Bílskúr er með epoxy á gólfi. Er skráður 27,2 m2.
Að utan:
Parhús á einni hæð með bílskúr byggt úr forsteyptum einingum. Útveggir eru klæddir forsteyptri veðurkápu að utanverðu. Þak er varið með PVC dúk með malarfargi. Gluggar eru Ál-tré með tvöföldu K-gleri. Gert er ráð fyrir 2 bílastæðum á lóðinni, 1 í bílskúr. Steypt, opin sorpskýli eru komin á lóð.
Kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótarmat. Vinsamlega athugið að myndirnar í auglýsingu gætu átt við annað hús sambærilegt.
Verð kr. 96.400.000,-