Eignamiðlun kynnir: Einstakt og sérlega glæsilegt 339,6 m2 einbýlishús á pöllum með sérstæðum bílskúr og einstaklega vel hannaðri stúdíóíbúð þar yfir við Brekkuland 4A í Mosfellsbæ.
Eignin skiptist í 255,2 m2 listilega hannað einbýlishús (sjónsteypa) á þremur pöllum ásamt stórum sérstæðum 42,2 fermetra bílskúr og glæsilegri 42,2 m2 stúdíóíbúð fyrir ofan bílskúr sem veitir möguleika á góðum leigutekjum. Náttúruparadís er í næsta nágrenni sem sést vel frá húsinu.
***Einstök eign sem vert er að skoða. Bókið einkaskoðun á kjartan@eignamidlun.is eða rognvaldur@eignamidlun.is***
Staðsetningin er afar góð á stórri eignarlóð, rétt ofan við Álafosskvosina, með útsýni yfir Álafoss og með Varmárdalinn, Helgafell ásamt Lágafelli og Úlfarsfelli í suðvestur. Þarna eru fallegar gönguleiðir og önnur útivist í göngufæri.
Húsið er hannað og teiknað af Halldóri Gíslasyni arkitekt og hefur meðal innlendra og erlendra umfjallana prýtt forsíðu arkitektablaðsins. Við hönnun hússins lagði arkitektinn áherslu á að hið fagra útsýni og nánasta umhverfi nyti sín sem best, þ.e. yfir Álafosskvosina og Álafossinn. Kistufell í Esju er í raun frummynd í hönnun hússins. Húsið er steinsteypt úr sjónsteypu og var tekið tillit til sólargangs við hönnun og staðsetningu hússins á lóð. Þakbrún er úr ryðfríu aluzinki.Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.Nánari lýsing:
Aðalhæð:Anddyri: Er vel opið með nýrri og einstaklega stórri álhurð í glæsilegri umgjörð (hiti í gólfum með þráðlausri stýringu í flestum gólfum eignarinnar) og sérsmíðuð millihurð á sveifluöxli frá anddyri í hol.
Baðherbergi: Með upphengt salerni og Duravit innréttingu og náttúrulegum steinvaski, veggir með steinefnasparsli.
Eldhús: Stórt með sérsmíðaða, glerklædda eldhúsinnréttingu frá Häcker með Gaggenau tækjum (bakara-og grillofn, gufuofn, hitaplata og tvöfaldur vínkælir), gott pláss fyrir borðstofuborð í stækkaðri borðstofu með glæsilegu útsýni. Í eldhúsinu er einstaklega stór eldunareyja úr hitaþolnu Dekton steinefni með borðaðstöðu og Bora spanhelluborði með gufugleypi. Horngluggi til vesturs og gluggar til norðurs, innfelld lýsing og kastarar í lofti. Veggir eru með steinefnasparsli.
Borðstofan: Var stækkuð nýlega út frá eldhúsi, með stórri rennihurð á móti kvöldsólinni, á Terrazzo slípaðan pall, undir borðstofunni er “tæknirými” þar sem hentugt upphitað geymslupláss er.
Þvottahús: Í nokkuð stóru þvottahúsi eru allar tengingar vegna gólf og húshita og gert ráð fyrir innréttingu með vaski. Lagnir eru fyrir þvottavél og þurrkara sem eru í núverandi innréttingu.
Stofa: Gengið er niður í stofu um nokkrar Terrazzo slípaðar steintröppur. Stofan er stór með mikilli lofthæð (5-7 metra), Terrazzo slípað steypt gólf með fallegum stállistum, miklir gluggar ná upp í loft til vesturs og útengi þaðan út á Terrazzo slípaða verönd. Gamall enskur arinn úr marmara er í stofu og er gólf tekið niður þar um 30 cm, sérgerðar sessur eru umhverfis arinn, innfelld lýsing í loftum (hiti í gólfum með þráðlausri stýringu).
Gengið beint upp tröppur og stiga frá holi, á millipalli er aðgengi í endarými þar sem gengið er um svalir tengdar stofu hússins. Á millipalli er unnið að stækkun og breytingu varðandi glugga til austurs við stiga. Á efri hæð er mikil lofthæð með innfelldum ljósum, í gólfi er hiti, gólfin eru flotuð og glæruð.
Efri hæð:Svefnherbergi: Í svefnherbergi er staðsteypt rúm með sérhönnuðum höfðagafli. Í hönnun er tekið tillit til staðsetningar og sólargangs. Þar er einnig útgengi út á stórar suðvestursvalir með glæsilegu útsýni yfir Varmá, Álafosskvosina og í vesturátt að sólarlagi. Nýlegir gluggar og svalahurð og svalir með pallaklæðningu.
Baðherbergi: Steinefnasparsl á veggjum, mjög stór og góð sturta, mikil lofthæð með innfelldri lýsingu og góð ofanbirta um þakglugga, upphengt salerni og lagnir fyrir frístandandi baðkar. Upphengd innrétting með náttúrulegum steinvaski.
Stúdíóíbúð: Íbúðin hefur öll verið tekin í gegn og endurnýjuð á einstaklega glæsilegan hátt með fjölþættum og dimmanlegum ljósum. Komið er inn í anddyri/gang með sérsmíðuðum skáp sem inniheldur fatahengi og búr/tækjaskáp er snýr að ganginum og skilur að svefnrými þar sem í skápnum er fatageymsla og skúffur. Í baðherbergi er sturta, upphengt salerni, skáparými sem meðal annars innheldur þvottavél og þurrkara, hurð á baði er sérsmíðuð og sturtuklefi sérhannaður og stór náttúrulegur steinvaskur. Í alrými er eldhúsinnrétting frá Häcker með Liebherr ísskáp og frysti með klakavél, tvöfaldur Samsung bakaraofn, Samsung grill og örbylgjuofn, uppþvottavél og tvöfaldur vínkælir. Í eldunareyju er Bora spanhelluborð með gufugleypi og mataraðstöðu. Í svefnrými er tvíbreytt rúm, útsýni er til norðurs og vesturs á móti kvöldsólinni, en utan við norðurhlið er gert ráð fyrir heitum potti og slökunaraðstöðu til að njóta himins og norðurljósa.
Bílskúrinn: Er rúmgóður, skráður 42,2 m2, með rafmagni, hita og rennandi vatni. Ný bílskúrshurð.
Stór eignarlóð, 1.706,7 fermetrar, búið er að teikna drög að breytingum að lóð og er ákveðnum framkvæmdum lokið, meðal annars er búið að steypa og Terrazzo slípa plön og tröppur með lýsingu. Einnig er búið að gera einstakan gosbrunn með stuðlabergi og leggja lagnir fyrir vatni og rafmagni í garðinn.
Allar upplýsingar veitir Kjartan Hallgeirsson löggiltur fasteignasali - kjartan@eignamidlun.is, s:824-9093 eða Rögnvaldur Örn Jónsson löggiltur fasteignasali - rognvaldur@eignamidlun.is, s:660-3452.