Andri Freyr Halldórsson lgfs. & LIND fasteignasala kynna með stolti:
Einstaklega vel skipulagt raðhús með bílskúr við Þorláksgeisla 84, 113 Reykjavík.
Eignin er björt með rúmgóðu alrými, aukin lofthæð á efri hæð, stórum svölum og timburpalli. Vel hönnuð og fjölskylduvæn eign á vinsælum stað í Grafarholti.
Skráð stærð eignar skv. FMR er 178,0 fm, þar af 29,70 fm bílskúr.
*Fasteignamat 2027 skv. fmr er 134.400.000 kr.*
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Freyr Halldórsson lögg. fasteignasali / 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS
*Miklar endurbætur á eigninni.
*Glæsilegt útsýni!
*Stór snyrtileg afgirt timburverönd.
*Aukin lofthæð á efri hæð.
*Falleg og gróin lóð.
Efri hæð:
Forstofa og hol með fallegum flísum á gólfi, ásamt fataskáp.
Gestasalerni: stórglæsilegt með flísum, með fallegri hvítri innréttingu.
-Fallegur parketlagður stigi liggur niður á neðri hæð.
Stofa/borðstofa: með fallegu parketi í björtu alrými með aukinni lofthæð. -Gríðarlega fallegt útsýni er úr stofunni.
-Útgengt er úr stofunni á rúmgóðar suður svalir.
Eldhús: er bjart og opið með fallegri svartri innréttingu og hvítum efri skápum að hluta, stæði fyrir ískáp og uppþvottavél. Eldhús opið og rúmgott.
Neðri hæð:
Baðherbergi: er smekklegt með flísum á gólfi og á veggjum. Þar má finna bæði baðkar og sturtu, upphengt salerni og snyrtilega innréttingu.
Hjónaherbergi 1: er mjög rúmgott með parket á gólfum og góðum fataskápum. (Býður upp á að koma fyrir fataherbergi.)
-Útgent er út á timbur verönd frá hjónaherbergi.
Svefnherbergi 2: mjög rúmgott með parket á gólfum og fataskáp.
Svefnherbergi 3: með parket á gólfum og fataskáp.
Þvottahús með góðri innréttingu með þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Bílskúr, 29.7 fm: Rúmgóður með flísum á gólfi, gluggi, heitt og kalt vatn.
-Rúmgott aflokað geymsluloft.
Bílastæði með hita í plani.
Lóð: Fallega gróin og vel hirt lóð með palli.
Viðhald/endurbætur að sögn seljenda:
Nýir gluggar á suðurhlið hússins.
Nýleg gólfefni á efri hæð — parket lagt árið 2021 og flísar árið 2023.
Nýleg innrétting á baði á neðri hæð.
Nýlegar innihurðir, endurnýjaðar árið 2021.
Þak málað árið 2025.
Nýleg innrétting í þvottahúsi, frá árinu 2021.
Eldhústæki endurnýjuð árið 2021 — háfur, ofn og helluborð.
Nýlegir fataskápar í forstofu og svefnherbergjum, endurnýjaðir á tímabilinu 2021–2025.
Innkeyrsla endurnýjuð/frágengin.
Þorláksgeisli 84 er vel staðsett eign í rólegu og vinsælu hverfi í Grafarholti.
Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir og útivistarsvæði.
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Freyr Halldórsson lögg. fasteignasali / 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS
*Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og SÝN.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 3.800 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.