LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega snyrtilega og fallega 3.herbergja 78,7 m2 íbúð á annari hæð í lyftubokk á þessum frábæra stað við Lautasmára 3 í Kópavogi. Samkvæmt HMS er íbúðarhlutinn skráður 73,9 m2 ásamt 4,8 m2 geymslu. Eignin er laus við kaupsamning.
Nánari lýsing eignar
Forstofan er rúmgóð með flísum á gólfi og veggháum fataskáp.
Eldhús með snyrtilegri Innrétting með efri og neðri skápum með flísum á milli skápa, ofni í vinnuhæð, helluborð með viftuháf yfir , gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu, parket er á gólfi.
Stofan er björt og rúmgóð með stórum gluggum til vesturs , parket á gólfi og útgengi á vestur-svalir.
Hjónaherbergið er rúmgott með góðum veggháum fataskápum, parket á gólfi.
Herbergi með veggháum fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, baðkar með sturtuaðstöðu. Innrétting með skápum.
Þvottahús er innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél, vaskur, skápar og flísar á gólfi.
Geymsla í sameign með máluðu gólfi.
Hjóla og vagnageymsla er í sameign.Stutt er í verslun og þjónustu sem er í göngufjarlægð. Sameiginleg bílastæði við húsið. Stutt í leikskóla, grunnskól og íþrótta/líkamsræktar aðstöðu. Smáralind er hinu megin við götuna og Smáratorg verslunarkjarni þar er Bónus, apótek og heilsugæsla.
Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is