Fasteignaleitin
Skráð 19. júní 2026

Ásbraut 17

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
79.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
756.313 kr./m2
Fasteignamat
60.300.000 kr.
Brunabótamat
43.300.000 kr.
EA
Elín Alfreðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2058541
Landnúmer
113701
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Upprunlegar
Raflagnir
ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir 2025 að hluta til
Þak
Járn endurnýjað 2018
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
já suður svalir
Lóð
4,53
Upphitun
hitaveita sameiginlegur hitii
Inngangur
Sérinngangur
Valhöll fasteignasala og Elín Alfreðsdóttir sími 8993090 eða elina@valholl.is lgf kynna bjarta 3ja-4ra herbergja íbúð á 1. hæð í góðu fjölbýli miðsvæðis í Kópavogi. Nýlega búið að fara í miklar framkvæmdir á húsinu að utan. Möguleiki er á að opna eldhús yfir í stofu (breya út frá upprunalegum teikningum) eða að færa eldhús yfir í borðstofu og gera auka herbergi þar sem eldhúsið er núna fyrir þá sem þurfa 3-4 svefnherbergi. Svalir eru til suðurs og 2 góð svefnherbergi á svefnherbergisgangi en að auki er eitt lítið herbergi með glugga sem mætti nýta á ýmsa vegu. ATH Ekki eru myndir af því herbergi/geymslu. Eignin þarfnast endurnýjunar að innann.
Stutt í alla helstu þjónustu í göngufæri og stuttur göngutúr í Sundlaug Kópavogs.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 79,2 fm. að auki er geymsla í kjallara sem ekki er skráð í fermetratölu.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi. Útgengt á suðursvalir. Nýlegir gluggar í stofu.
Eldhús er lokað en dæmi eru um að það hafi verið opnað yfir í stofu í íbúðum í húsinu. Einnig er dæmi um að eldhús hafi verið fært inn í borðstofuna og herbergi útbúið þar sem eldhús er staðsett. Eldhúsið er með eldri innréttingu og tækjum. Flísar á gólfi og borðkrókur.
Svefnherbergishol/gangur með parket á gólfi og stórum skáp.
Hjónaherbergi er rúmgott með dúk á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi II er rúmgott með dúk á gólfi.
Herbergi lll eða geymsla innan íbúðar er L- laga en með góðum glugga og hægt að koma þar fyrir einstaklings rúmi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með baðkar m.sturtu, eldri innréttingu og skáp.
Sameiginlegt þvottahús er í kjallara þar sem hver íbúð er með sitt tengi.
Sérgeymsla íbúðar (ca. 7-8 fm) í sameign í kjallara og ekki skráð í fermetratölu íbúðar.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.
Töluvert miklar framkvæmdir áttu sér stað á húsinu að utan árið 2025 t.d var hluti glugga endurnýjaður, húsið múrviðgert og málað að utan.
Samkvæmt uppl. frá húsfélagi vak skipt um járn á þaki 2018, 2021 var frárennsli frá húsinu að framanverðu lagað, 2020 var skipt um þakrennur að framanverðu við inngang íbúða og hurðir í sameign lakkaðar. Húsfélagið á íbúð í sameign og er hagnaðurinn af útleigu settur í framkvæmdasjóð húsfélagsins.
Íbúðin er í útleigu fyrir 285.000 krónur á mánuði og er samningur til áramóta í gildi. Leigendur eru tilbúnir að finna aðra eign fyrr eða að leigja áfram eftir því sem nýjum eiganda hentar best.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8993090 eða elina@valholl.is 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Nýbýlavegur 66
Bílskúr
Skoða eignina Nýbýlavegur 66
Nýbýlavegur 66
200 Kópavogur
73.6 m2
Fjölbýlishús
212
923 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Fagrihjalli 3
Skoða eignina Fagrihjalli 3
Fagrihjalli 3
200 Kópavogur
60.5 m2
Fjölbýlishús
211
990 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Fellsmúli 11
Skoða eignina Fellsmúli 11
Fellsmúli 11
108 Reykjavík
58.7 m2
Fjölbýlishús
211
969 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbraut (Miðja) 6
Hraunbraut (Miðja) 6
805 Selfoss
100.2 m2
Raðhús
413
618 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin