** Opið hús mánudaginn 2. mars frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 102,7 m2, 3-4ra herbergja íbúð á efri hæð með sérinngangi í fjórbýlishúsi við Leirutanga 21B í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 102,7 m2 og skiptist í forstofu, hol stofu og eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Frábær staðsetning á rólegum og fjölskylduvænum stað í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, sundlaug, líkamsrækt og golfvöll. Vinsælar gönguleiðir og útivistarsvæði eru í næsta nágrenni.Endurbætur samkvæmt upplýsingum frá seljanda: 2006: Þakið endurnýjað. Í framhaldi af því var skipt um loftklæðningar í efri hluta íbúðarinnar og risherbergi endurnýjað.
2011: Sólpallur smíðaður. Skipt um gler í gluggum norðanmegin, þ.e. í herbergjum og baði.
2012: Eldhús endurnýjað, hannað og smíðað af Við og við. Nýtt parket í stofu. Rafmagn í stofu og eldhúsi endurnýjað.
2018: Ný innrétting í þvottahúsi.
2025: Nýr gluggi við útitröppur.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sentNánari lýsing. Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Hol er með flísum á gólfi.
Stofa er á neðri palli, opin við eldhús með parketi á gólfi. Mikil lofthæð er í rýminu. Útgengt er úr stofu á timburverönd til suðurs.
Eldhús með parketi á gólfi, eldhúsinnréttingu frá Við og við, bakaraofni, helluborði og viftu. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Flísar eru á veggjum milli eftir og neðri skápa.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum. Innfeld lýsing er í rýminu.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 (risherbergi) er upp af holi, undir súð, með spónarparketi á gólfi. Opnanlegur þakgluggi er í rýminu.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu með handlaug, gólfsalerni og baðkari með sturtuaðstöðu. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús er inn af holi með flísum á gólfi og góðri innréttingu með handlaug og gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er inn af risherbergi, undir súð.
Á lóðinni er ca. 5 m2 smáhúsi sem er nýtt sem köld geymsla.
Tvö bílastæði er við hlið hússins merkt íbúðinni.
Verð kr. 79.900.000,-