Um er að ræða fallega jörð í Haukadal þar sem nú er rekinn sauðfjárbúskapur. Jörðin selst ásamt allri áhöfn.
Jörðin Hamrar eru í ofanverðum Haukadal, sunnan við Haukadalsá efri. Er talið að bærinn dragi nafn sitt af þverhníptum hömrum fyrir ofan bæinn. Fallegt umhverfi með mikla möguleika og útsýni.
Hamrar eru landstór jörð um það bil 1050 ha að stærð (gróf mæling skv. Nytjaland.is)) Land jarðarinnar liggur frá Haukadalsá og suður á mikið fjalllendi, Hamrafjall. Þar inná eru Skálagil og Skáladalur. Næstu jarðir eru Jörvi að vestan en Mjóaból að austan. Norðan Haukadalsár er svo jörðin Núpur. Fyrstu heimildir um Hamra er að finna í jarðasölubréfi frá 1541 en þá kemst jörðin í eigu Daða Guðmundssonar í Snóksdal.
Á Hömrum er nú búið með sauðfé og er greiðslumark jarðarinnar 395,7 ærgildi. Tún jarðarinnar er 18,7 ha að stærð samkvæmt skráningu HMS. Rjúpnaveiði er á fjalllendi jarðarinnar og veiðiréttur í Haukadalsá. Neysluvatn er tekið úr brunni á landareigninni. Á jörðinni er friðlýst náttúruvætti sem nefnist Saltadý og er uppspretta framan við bæinn. Í rennsli uppsprettunnar er salt sem sest á steina og sækja skepnur mjög í það.
Helstu byggingar á jörðinni: Einbýlishús 135,30 fm að stærð á 2 hæðum byggt 1945. Á neðri hæð eru forstofa, hol, stofa, eldhús með góðri innréttingu og borðkrók, þvottahús,geymsla og baðherbergi með sturtu. Á efri hæð eru 3 herbergi og snyrting. Parket á gólfum utan votrýma. Húsið er nokkuð endurnýjað: Klæðning á húsi endurnýjuð 1980. Skipt um þakefni 2003-2004. Gluggar á neðri hæði endurnýjaðir 2015 og gluggar á efri hæðinni og útihurðir 2020-21. Vatnslagnir og ofnakerfi endurnýjað 2007. Þá var baðherbergi endurnýjað 2010. Við húsið er ágætur sólpallur með skjólveggnum.
Fjárhús með áburðarkjallara byggt 1981. Stálgrindarhús með steyptum kjallara 285 fm að stærð. Grindur í gólfi, endurnýjaðar 2011, og einangrað þak. Hlaða byggð 1982. Klædd stálgrind með steyptu gólfi, 178 fm að stærð.
Eldri byggingar Fjós byggt 1957 og fjárhús byggt 1960 ásamt sambyggðum hlöðum. Byggingar sem nýttar eru sem verkstæði og geymslur.
Hér er um mjög áhugaverða jörð að ræða sem býður upp á möguleiki í ferðamennsku svo sem rjúpnaveiði, og þá eru Skálagil, Bæjargil og Stekkjargil vinsælir staðir til að stunda ísklifur um vetur.
Listi yfir bústofn og tæki sem fylgja með jörðinni liggur fyrir. Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson Lögg. fasteignasali, í síma 8650350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.