Lögeign kynnir eignina Höfðabrekka 29 B, 640 Húsavík.Um er að ræða 95,4 m2 íbúð ásamt 51,8 m2 bílskúr á tveimur jafn stórum hæðum í tvíbýlishúsi. Innra skipulag skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, búr og bílskúr sem er á tveimur hæðum.
Nánari Lýsing:
Forstofa: komið er inn í flísalagða forstofu. inn af forstofu tekur við gangur sem tengir saman öll önnur rými eignarinnar.
Stofa: Er björt og rúmgóð, stofan er í opnu rými með eldhúsinu sem gefur íbúðinni skemmtilegt flæði. Útgengt er út á verönd úr stofunni.
Eldhús: Hvít innrétting með bæði efri og neðri skápum, innfelldum eldhústækjum og lítil eyja er síðan við innréttinguna.
Þrjú svefnherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott og með stórum fataskáp og svo eru 2 sem eru aðeins minni.
Þvottahús og búr: er með lökkuðu gólfi og lítilli vaskainnréttingu, inn af þvottahúsinu er búr.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf, sturtubaðkar, wc, hvít innrétting með háum skáp.
Bílskúr: er við hliðin á eigninni og er á tveimur hæðum, kjallarinn undir skúrnum er með góðri hæð og nýtist því vel, einnig er uppgengt úr skúrnum í geymslu.
Að utan: steypt stæði er framan við eignina og gróinn garður í kringum húsið ásamt timburverönd. Yfirbyggt er fyrir framan anddyri eignar.
Annað: Íbúðin var tekin í gegn árið 2003 þar sem allar innréttingar, gólfefni og tæki voru endurnýjuð að frátöldum innihurðum.
Þak var endurnýjað fyrir nokkrum árum.
Hús hefur verið málað og almennt fengið gott viðhald að utan í gegnum árin.
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á