FS fasteignir – 571-9992Stekkjartún 32 401, 600 AkureyriGlæsileg 4ra herbergja 103,6m
2 íbúð á fjórðu hæð í suðurenda í góðu fjölbýlishúsi með lyftu og sér stæði í bílskýli í Naustahverfi. Mjög flott útsýni.
***Eignin getur verið laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings
Björt og falleg íbúð með vönduðum innréttingum.
Eignin skiptist í:Forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Forstofa er með opnu fatahengi, skúffum, flísar á gólfi, gluggi í forstofu.
Eldhús er með fallegri ljósri innréttingu innbyggð uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð, dökk borðplata, spegill milli efri og neðri skápa. Harðparket á gólfi.
Stofa er í opnu rými með eldhúsi og borðstofu, harðparket á gólfi, þaðan er rennihurð út á rúmgóðar svalir með svalarlokun. Svalir snúa til suðvesturs.
Herbergi með góðum fataskáp harðparketi á gólfi, og glugga til suðvesturs.
Herbergi með góðum fataskáp og harðparket er á gólfi og gluggi til norðausturs.
Herbergi harðparket á gólfi og gluggi til norðausturs.
Baðherbergi er rúmgott þar er rúmgóð ljós innrétting, pláss er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, ( sem fylgja með ) walk-in sturta, upphengt salerni að vandaðri gerð og handklæðaofn. Flísar eru á gólfi og hluta veggja.
Sér rúmgóð geymsla er í sameign.
Annað:
- Góðar svalir til suðurs, svalir eru með svalalokun.
- Gólfhiti.
- Uppþvottavél og ísskápur fylgir með.
- Þvottavél og þurrkari fylgir með.
- Stæði í bílskýli með 3ja fasa rafmagni.
- Ljósleiðari.
- Hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.
Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða fsfasteignir@fsfasteignir.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, svala@fsfasteignir.is
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, sigurpall@fsfasteignir.is
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf.
Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.