Fasteignaleitin
Opið hús:30. júní kl 17:30-18:00
Skráð 26. júní 2026

Hallgerðargata 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
63.3 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
1.104.265 kr./m2
Fasteignamat
73.300.000 kr.
Brunabótamat
51.150.000 kr.
Mynd af Andri Freyr Halldórsson
Andri Freyr Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2506204
Landnúmer
225427
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
6
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
05
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já. Svalalokun
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Andri Freyr Halldórsson lgfs. ásamt Lind kynna til sölu:
Vel staðsetta, bjarta & rúmgóða 63.3 fm 2ja herbergja íbúð á 4.hæð í lyftuhúsi á þessum frábæra stað við Hallgerðargötu.

Íbúðarrými er 54.5 fm og sérgeymsla 8.8 fm. Svalir með svalalokun með fallegu sjávar útsýni.
 
Skráð stærð eignar skv. FMR er 63.3 fm. Íbúðin er merkt 04-05. 

Nánari upplýsingar veita:
Atli Karl Pálmason lgfs  // 662-4252 // ATLI@FASTLIND.IS

Andri Freyr Halldórsson lgfs  // 762-6162 // ANDRI@FASTLIND.IS

*Frábær staðsetning.
*Svalir með svalalokun.
*Fallegt útsýni til sjávar.
*Vandaðar innréttingar.


Eignin skiptist í:
Andyri, forstofugang, stofu/borðstofu, eldhús, hjónaherbergi, baðherbergi er með stæði fyrir þvottavél og þurrkara, sérgeymslu í sameign.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla á jarðhæð. Næg bílastæði með aðgengi að rafhleðslum, gegn hóflegu gjaldi.


Nánari lýsing eignar:
Andyri: með harðparketi á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús: opið með vönduðum innréttingum frá SCHMIDT, með spanhelluborði & gufugleypi. Mikið skápapláss, innfeld uppþvottavél og stæði fyrir ísskáp. Bakarofn
Stofa & borðstofa: er opið og bjart rými með harðparketi á gólfi.
-Útgengt er úr stofu út á rúmgóðar svalir með svalalokun - fallegt útsýni til sjávar.
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf með Walk-in sturtu og vandaðri vaskinnréttingu með skápum og skúffum, handklæðaofni og upphengdu salerni.
-Stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi: mjög rúmgott með harðparketi á gólfi. -Mikið skápapláss.
Geymsla: 8.8 fm, staðsett í sameign.

Hallgerðargata 5 er á eftirsóttum stað á Kirkjusandi í Reykjavík, í nýlegu og vel skipulögðu hverfi sem hefur byggst upp við strandlengjuna á mörkum Laugardals og Borgartúns. Umhverfið einkennist af nútímalegri byggð, fallegum göngu- og hjólaleiðum og góðu aðgengi að bæði náttúru og borgarlífi. Stutt er í sjávarsíðuna þar sem njóta má útivistar meðfram strandlengjunni og jafnframt er Laugardalurinn í göngufæri með fjölbreyttum möguleikum til hreyfingar og afþreyingar.
Í næsta nágrenni er fjölbreytt þjónusta, þar á meðal verslanir, veitingastaðir, heilsugæsla, líkamsrækt og önnur dagleg þjónusta. Einnig er stutt í fjölskyldu- og útivistarsvæði Laugardalsins með sundlaug, grasagörðum, dýragarði, skautahöll og fjölmörgum íþróttamannvirkjum. Borgartún, eitt helsta atvinnu- og þjónustusvæði höfuðborgarinnar, er í örfárra mínútna fjarlægð og miðborg Reykjavíkur er einnig auðveldlega aðgengileg.

Nánari upplýsingar veita:
Andri Freyr Halldórsson lgfs  // 762-6162 // ANDRI@FASTLIND.IS

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. 
Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma & SÝN. 


Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/02/202152.250.000 kr.49.500.000 kr.63.3 m2781.990 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyjabakki 5
Opið hús:01. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Eyjabakki 5
Eyjabakki 5
109 Reykjavík
70.1 m2
Fjölbýlishús
211
854 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Víkurbraut 13
Skoða eignina Víkurbraut 13
Víkurbraut 13
230 Reykjanesbær
171 m2
Fjölbýlishús
412
350 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Túngata 13
Skoða eignina Túngata 13
Túngata 13
230 Reykjanesbær
36 m2
Fjölbýlishús
211
831 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina Lynggata 2
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Lynggata 2
Lynggata 2
210 Garðabær
100.7 m2
Fjölbýlishús
312
873 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin