**Bókið einkaskoðun hjá Brynjari í síma 896 1168 eða brynjar@eignamidlun.is**
Einstaklega bjart og glæsilegt 263m² parhús þar af 30.6m² innbyggður bílskúr. Fjögur góð svefnherbergi. Virkilega góð fjölskyldu eign með fallegu útsýni yfir borgina. Gott útisvæði með heitum potti, verönd og opnu grænu svæði. Smellið hér til að fá söluyfirlit sent straxSjá video af eigninniSamkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 263m², flatarmál íbúðarrýmis er 232,4m² og flatarmál geymslu er 30,6m².
Eignin telur forstofu, fjögur svefnherbergi, sjónvarpsrými, tvær stofur, eldhús, tvö baðherbergi, þvottaherbergi/geymslu ásamt innbyggðum bílskúr.
Nánari lýsing:
Neðri hæð.Komið er inn í rúmgóða forstofu með fatahengi, flísar á gófi. Frá forstofu er innangengt inn í flísalagðan bílskúr. Tvö rúmgóð svefnherbergi. Á milli herbergja er gott sjónvarpsrými með hurð útí garð, lítið mál að breyta þessu í fimmta svefnherbergið. Rúmgott baðherbergi með baðkari, handklæðaofni, vegghengt salerni, flísar á gólfi og í kringum baðkar. Stórt þvottaherbergi / geymsla á jarðhæð. Innfelld lýsing er á allri jarðhæðinni og harðparket á gólfum.
Efri hæð.Steyptur stigi á milli hæða. Þegar komið er upp á hæðina tekur á móti manni fallegt opið alrými sem tengir saman borðstofu, stofu og eldhús. Góð lofthæð á allri hæðinni sem er með innfelldri lýsingu. Eldhúsið er bjart með hvítri eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, spanhelluborð, ofn í vinnuhæð. Útgengt frá eldhúsi á fallega verönd og velhirtan garð sem snýr til suðurs. Borðstofan er með stórum gluggum með fallegu útsýni, útgengt frá borðstofu á svalir. Frá rúmgóðri stofunni er einnig fallegt útsýni, gert er ráð fyrir kamínu í stofu. Stórt hjónaherbergi með fataherbergi innaf, útgengt á verönd frá hjónaherberginu. Ágætis svefnherbergi er við hliðina á hjónaherbergi. Einnig er nýlega uppgert baðherbergi á hæðinni með sturtu og handklæðaofni.
Lóðin er fallega frágengin með gróðri, pöllum og skjólveggjum. Steypt upphitað bílaplan framan við hús þar sem er pláss fyrir allt að fjóra bíla. Uppsett hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. Aftan við hús í suðurgarði er timburverönd, skjólveggir og heitur pottur (hitaveitu). Húsið er á vinsælum stað í Kórahverfinu í Kópavogi þar sem stutt er í náttúruna, golfvöll GKG, göngu og hjólaleiðir sem og alla helstu þjónustu, verslun, leik- og grunnskóla.Nánari uppl.Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is