Fasteignaleitin
Skráð 12. apríl 2024
Deila eign
Deila

Fífuvellir 10

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
217.7 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
128.900.000 kr.
Fermetraverð
592.099 kr./m2
Fasteignamat
135.500.000 kr.
Brunabótamat
106.500.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2005
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2272233
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Glæsilegt einbýlishús á tveimur pöllum við Fífuvelli 10 í Hafnarfirði.

-- Sendu póst á arni@palssonfasteignasala.is til þess að bóka einkasýningu -- 

* Byggt 2005
* 4 svefnherbergi
* Tvö baðherbergi
* Stór afgirt suður verönd út frá eldhúsi
* Rúmgóður bílskúr


EIGN SEM ER VERT AÐ SKOÐA!

Nánari upplýsingar veita:

Árni B. Kristjánsson B.A í lögfræði / Lgf í síma  616-2694 arni@palssonfasteignasala.is
******palssonfasteignasala.is*****
*****verdmat.is****

Birt stærð samkv. Þjóðskrá Íslands er 217,7 m2 og þar af er bílskúr 32,4 m2. Fasteignamat 2024 er 135.500.000 kr. 

Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, gang, sjónvarpshol, eldhús, borðstofu, stofu, fjögur herbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.

Nánari lýsing: 
Efri pallur:
Forstofa með skápum á heilum vegg, flísar á gólfi.
Gestasalerni flísalagt með innréttingu.
Eldhús með fallegri eikarinnréttingu, helluborð, ofn og háfur, tengi fyrir uppþvottavél, flísar á milli skápa og á gólfi.
Rúmgóð og björt borðstofa með flísum á gólfi, útgengt út á stóra timburverönd með skjólveggjum.
Svefnherbergi með skápum, parket á gólfum.
Sjónvarpsherbergi með parketi á gólfi.
Þvottahús með innréttingu og útgengi á lóð, einnig innangengt í bílskúrinn. 
Gangur með flísum á gólfi og fallegu glerhandriði þannig að horft er yfir neðri hluta hússins. Upptekin loft eru yfir aðalrýminu þannig að horft er niður í stofurnar á neðri palli frá eldhúsi og borðkrók og gangi á efri palli.

Neðri pallur: 
Gengið er á tveimur stöðum niður parketlögð þrep á neðri pall hússins.
Björt stofa með parket á gólfi og mikilli lofthæð, útgengt á lóð.
Tvö góð svefnherbergi með parketi á gólfi, skápar í öðru þeirra.
Hjónaherbergi með skápum á heilum vegg, parket á gólfi. 
Baðherbergi með eikarinnréttingu, sturtuklefa, baðkar, flísar á gólfi og veggjum.
Öll gólfefni eru eikarparket eða flísar. Öll loft klædd loftaþiljun, hvíttuð, (líka bílskúrinn) og halogen lýsing.  

Bílskúr er fullbúinn með geymslulofti og geymslu innaf. Epoxy á gólfi. 
Húsið stendur á 813 fm lóð sem er að mestu frágengin með stóru hellulögðu bílaplani og timburverönd með skjólveggjum. 

Húsið er staðsett á vinsælum og fjölskylduvænum stað í Hafnarfirði þar sem stutt er útivistarparadís Hafnfirðinga s.s. Ástjörn, Hvaleyrarvatn, Heiðmörk, næsta gos á Reykjanesinu, einnig er stutt í skóla, leikskóla og ýmsa aðra þjónustu s.s. verslanir, sundlaugar, líkamsræktarstöðvar.
Sjón er sögu ríkari.


Smelltu hér fyrir góð ráð fyrir kaupendur
Nýjustu fréttir af fasteignamarkaðnum

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/07/201972.800.000 kr.79.200.000 kr.217.7 m2363.803 kr.
03/12/201754.850.000 kr.70.500.000 kr.217.7 m2323.840 kr.
29/11/201651.350.000 kr.50.500.000 kr.217.7 m2231.970 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 2005
32.4 m2
Fasteignanúmer
2272233
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.100.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lindarberg 78
Bílskúr
Opið hús:07. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Lindarberg 78
Lindarberg 78
221 Hafnarfjörður
187.6 m2
Parhús
714
730 þ.kr./m2
136.900.000 kr.
Skoða eignina Furuvellir 20
Bílskúr
Opið hús:07. maí kl 17:00-18:00
Skoða eignina Furuvellir 20
Furuvellir 20
221 Hafnarfjörður
187.3 m2
Einbýlishús
413
672 þ.kr./m2
125.800.000 kr.
Skoða eignina Drangsskarð 15A
Skoða eignina Drangsskarð 15A
Drangsskarð 15A
221 Hafnarfjörður
246.4 m2
Fjölbýlishús
826
547 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Erluás 5
Bílskúr
Skoða eignina Erluás 5
Erluás 5
221 Hafnarfjörður
208.3 m2
Parhús
614
648 þ.kr./m2
135.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache