** Opið hús laugardaginn 6. júní frá kl. 13:00 til 13:30 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt 139,8 m2 endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Klapparhlíð 38 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 139,8 m2, þar af raðhús 106,0 m2 og bílskúr 33,8 m2. Húsið skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Innangengt er í rúmgóðan bílskúr úr forstofu. Gott skipulag, góð lofhæð og gólfhiti er í húsinu. Afgirt timburverönd og garður til suðurs. Timburverönd með heitum potti. Í garði eru tveir geymsluskúrar. Um er að ræða spennandi eign á vinsælum stað í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, leikskóla, sundlaug, líkamsræktarstöð, golfvöll og vinsæl útivistarsvæði.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent straxNánari lýsing:Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi. Innangengt er í bílskúr úr forstofu.
Stofa er opin við eldhús með parketi á gólfi. Útgengt er á afgirta timburverönd til suðurs með heitum potti. Rafdrifin gluggatjöld.
Eldhús er með parketi á gólfi, eldhúseyju með helluborði og innréttingu með ofni og vaski. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Steinn á borðum.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi. Rafdrifin gluggatjöld.
Svefnherbergi 2 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, innréttingu með handlaug, vegghengdu salerni, 'walk-in' sturtu og handklæðaofn. Opnanlegur gluggi er í rýminu.
Þvottahús er með flísum á gólfi, vinnuborði með skolvaski, skápum og þvottasnúru. Opnanlegur gluggi er í rýminu.
Bílskúr er rúmgóður, skráður 33,8 m2 og er með flísum á gólfi. Rafdrifinn bílskúrshurðaopnari. Útgengt er á timburverönd úr bílskúr.
Geymsluskúrar eru tveir á lóðinni.
Bílaplan fyrir framan hús er malbikað og rúmgott. Timburverönd og garður snúa í suður. Góð skjólgirðing er umhverfis garðinn með lýsingu.
Verð kr. 129.900.000,-