Fasteignaleitin
Skráð 23. maí 2026

Hraunbær 12A

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
99.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.900.000 kr.
Fermetraverð
633.434 kr./m2
Fasteignamat
65.650.000 kr.
Brunabótamat
51.600.000 kr.
Mynd af Kristján Borgar Samúelsson
Kristján Borgar Samúelsson
Löggiltur fasteignasali
viltu.isEignalisti
Byggt 1967
Jarðhæð
Garður
Svalir
Fasteignanúmer
2044479
Landnúmer
111074
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Upprunalegt
Svalir
Já
Byggingarstig
B4 - Fullgerð bygging

-- OPIÐ HÚS FELLUR NIÐUR --

Eign seld með fyrirvara.

Viltu kynnir vandaða og fallega 4 herbergja íbúð við Hraunbæ 12A í Árbænum. Björt og falleg eign á fyrstu hæð með miklum karakter og möguleikum til að gera upp eftir eigin höfði.

Ekki hika við að hafa samband til að bóka skoðun. Kristján Samúelsson, löggiltur fasteignasali í 777-0191eða kristjan@viltu.is

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Íbúðin sjálf er 99,3 m2 og á 1. hæð í 3 hæða blokk. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús og stofu.Upprunalegar innréttingar og um 15 ára plastparket á allri íbúðinni fyrir utan baðherbergi sem er flísalagt. Tvennar svalir í vestur og austur.
Geymsla í sameign er skráð 5,1 m2. Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni.
Stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.

Nánari lýsing:

Forstofa: Frá stigagangi er gengið í góða forstofu með plastparketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp. Þaðan er hægt að fara í stofuna, eldhúsið, svefnherbergisganginn og baðherbergið.
Eldhús: Er í upprunalegu ástandi og mjög vel með farið. Það er með hvíta og viðarlitaða innrettingu og plastparket á gólfi.
Stofa/Borðstofa: Eru við hliðina á eldhúsinu í opnu og björtu rými.. Þaðan er gengið á skjólgóðar svalir til vesturs. Plastparket á gólfi.
Herbergi 1: Bjart og rúmgott hjónaherbergi með stórum innbyggðum fataskáp. Þaðan er gengið á skjólgóðar svalir til austurs. Plastparket á gólfi.
Herbergi 2: Gott herbergi með tvöföldum fataskáp. Plastparket á gólfi.
Herbergi 3: Gott herbergi með Plastparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf í ljósum lit. Baðkar með sturtuaðstöðu, salerni, handlaug og 2 gluggar og þar af einn opnanlegur.

Upplýsingar frá seljanda:

Það var skipt um glugga í íbúðinni 2017 og í eldhúsinu 2020.
Blokkin var máluð 2017 og skipt var um útidyrahurðirnar 2017.
Þvottahús, það þarf að panta tíma i þvottahúsinu með spjaldi merkt 11 ( er í íbúðinni) það þarf að skrá upphaf og endir í þvottahúsinu í bók hjá mælinum sem er i Hraunbæ 12.


Á jarðhæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla. Í kjallara er sérgeymsla, 5,1 m2.

Þar er einnig sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi.

Á fallegum, gróðurríkum stað í Árbæ, í stuttu göngufæri við Elliðaárdalinn og fjölmargar útivistar- og gönguleiðir, stendur Hraunbær 12. Eignin er í rólegu, vel skipulögðu íbúðahverfi með leiksvæði og grænum svæðum — fullkomið fyrir fjölskyldur. Stutt er í grunn- og leikskóla, verslun, sundlaug og íþróttaaðstöðu, auk góðra tenginga við stofnbrautir og almenningssamgöngur. Frábær staðsetning fyrir þá sem sækjast eftir friðsælu umhverfi og með stutt í þjónustu og skóla.

Nánari upplýsingar í síma 583-5000 eða kristjan@viltu.is

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/09/202665.650.000 kr.56.000.000 kr.99.3 m2563.947 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dvergaborgir 5
1.jpg
Skoða eignina Dvergaborgir 5
Dvergaborgir 5
112 Reykjavík
106,7 m2
Fjölbýlishús
423
726 þ.kr./m2
77.500.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR -San Miguel de Salinas
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR -San Miguel de Salinas
Spánn - Costa Blanca
89 m2
Fjölbýlishús
322
301 þ.kr./m2
26.800.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168
Bílastæði
Opið hús:11. okt. kl 13:00-14:00
Skoða eignina Laugavegur 168
Laugavegur 168
105 Reykjavík
112,1 m2
Fjölbýlishús
312
1087 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168
Opið hús:11. okt. kl 13:00-14:00
Skoða eignina Laugavegur 168
Laugavegur 168
105 Reykjavík
83,7 m2
Fjölbýlishús
312
1074 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin