Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum við Ólafsgeisla 101 í Grafarholtinu. Eignin í heild er skráð 232,6 fm, þar af er bílskúrinn 49,7 fm skv. Þjóðskrá Íslands. Eignin skiptist í anddyri, hol, tvöfaldan innbyggðan bílskúr, eldhús, rúmgóða stofu, opið sjónvarpsrými, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús og geymslu. Auk þess eru 45 óskráðir fm, þar sem búið er að koma fyrir geymslu, búri, vinnuherbergi, gufu og sturtu. Möguleiki á að bæta við svefnherbergjum.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali í GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.isSækja söluyfirlit HÉRNÁNARI LÝSING: Eignin skiptist í rúmgott anddyri, hol, tvöfaldan innbyggðan bílskúr, eldhús, stofu, borðstofu, opið sjónvarpsrými, 5 svefnherbergi, tvö baðherbergi og geymslu.
Auk þess eru 45 óskráðir fm, þar sem búið er að koma fyrir geymslu, búri, vinnuherbergi, gufu og sturtu. Möguleiki á að bæta við svefnherbergjum.
Neðri hæð:Forstofa: Marmari á gólfi og góðir skápar sem ná upp í loft.
Forstofuherbergi: Rúmgott svefnherbergi með fataskáp. Parket á gólfi.
Hol: Tengir saman rými neðri hæðar og þaðan er stigi upp á efri hæð. Marmari á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með handlaug, salerni og sturtuklefa. Flísar á gólfi og veggjum. Gluggi á baðherbergi.
Garður: Garðurinn er gróinn og hellulagður. Aðkoma að húsinu er glæsileg.
Bílskúr: Innangengt frá forstofu í snyrtilegan bílskúr. Fyrir framan hann og húsið er hellulagt plan með hitalögn.
Efri hæð:Stofa: Rúmgóð og björt stofa og borðstofa. Marmari á gólfi. Útgengt úr stofu út á yfirbyggða verönd.
Eldhús: Mjög rúmgott, opið eldhús. Innrétting með góðu skápaplássi, eldhústækjum, granít á borðum. Marmari á gólfi.
Herbergi: Rúmgott með fataskápum. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum. Parket á gólfi.
Herbergi: Rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi.
Sjónvarpshol: Rúmgott opið sjónvarpshol. Marmari á gólfi.
Þvottahús: Snyrtilegt með vaski og borði. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og veggjum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Falleg innrétting, sturta og baðkar. Gluggi á baðherbergi.
Glæsilegt, rúmgott fjölskylduhús einbýlishús á rólegum og góðum stað í Grafarholti, steinsnar frá golfvellinum. Húsið stendur ofan við götu og er útsýnið glæsilegt.Stutt í leiksvæði, þjónustu, verslanir, skóla og stofnbraut.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali í GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.isGjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 3.800.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.