Fasteignaleitin
Skráð 23. okt. 2024
Deila eign
Deila

Dvergholt 11

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
213.8 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
137.900.000 kr.
Fermetraverð
644.995 kr./m2
Fasteignamat
122.700.000 kr.
Brunabótamat
99.400.000 kr.
Mynd af Hafliði Halldórsson
Hafliði Halldórsson
Fasteignasali og lögfræðingur
Byggt 1999
Þvottahús
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2074440
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan TORG kynnir í sölu: Fallegt, 213,8 fm einbýlishús á tveimur hæðum, með bílskúr, í fjölskylduvænu hverfi í Hafnarfirði. Húsið skiptist í anddyrisgang, eldhús, borðstofu, stofu, 4-5 svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús/geymslu og bílskúr. Tvennar svalir, út frá stofu og einnig út frá aðalinngangi. Stór sólpallur með heitum potti og glæsilegur verðlaunagarður. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina.
Allar nánari upplýsingar veita Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@fstorg.is og Hafliði Halldórsson, löggiltur fasteignasali í síma 846-4960 eða haflidi@fstorg.is - SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR


Nánari lýsing:
Efri hæð skiptist í anddyrisgang með fataskáp og flísum á gólfi. 
Eldhúsið er með góðu skápaplássi, gegnheilum viðarborðplötum, vinnueyju og borðkrók. Flísar eru á gólfi í eldhúsi.
Eitt svefnherbergi er á efri hæð, við hliðina á því er fataherbergi með góðu skápaplássi og aðgengi að góðu geymslulofti. Geymsluloftið er um 27 fm og er með stiga og talíu til að auðvelda flutninga upp  og niður. Parket er á gólfi á svefnherbergi.
Stofa og borðstofa eru bjartar og samliggjandi, með glugga á þrjá vegu og útgengi út á 18,2 fm suður svalir.  Parket á gólfum
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með fallegri, rauðri innréttingu og  hornbaðkari. Tveir gluggar eru á baðherbergi.
Úr stofu er gengið niður á neðri hæð.
Neðri hæð skiptist í hol sem tengir önnur rými hæðar.
Setustofa var teiknuð sem herbergi, auðvelt er að loka því og bæta þannig við auka herbergi. Gengið er út á pall úr því rými. 
Þrjú svefnherbergi eru á neðri hæð, öll björt og rúmgóð. Parker er á gólfum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með fallegri, blárri innréttingu og sturtuklefa. Gluggi er á baðherberginu.
Þvottahús og geymsla er með hvítri innréttingu með viðarlitaðri borðplötu, gott skápapláss og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengt er úr þvottahúsi.
Bílskúr er um 22 fm og er innangengt í hann af neðri hæð. Í bílskúr er hiti, rafmagn, og heitt og kalt vatn.

Að sögn seljenda hefur eftirfarandi verið gert:
2016-2017 Þak málað
2021 hús málað að utan
2022 plan hellulagt

Fallegt einbýlishús, vel staðsett innst í botnlanga á grónum stað í Hafnarfirði. Stutt er í leik- og grunnskóla, útivist og alla helstu þjónustu og verslanir.


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Blómvangur 17
Bílskúr
Skoða eignina Blómvangur 17
Blómvangur 17
220 Hafnarfjörður
214.7 m2
Einbýlishús
614
698 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Hrauntunga 5b
Skoða eignina Hrauntunga 5b
Hrauntunga 5b
220 Hafnarfjörður
168.1 m2
Parhús
513
803 þ.kr./m2
135.000.000 kr.
Skoða eignina Herjólfsgata 14
Bílskúr
Skoða eignina Herjólfsgata 14
Herjólfsgata 14
220 Hafnarfjörður
166.4 m2
Hæð
514
811 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Brattakinn 4
Bílskúr
Opið hús:29. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Brattakinn 4
Brattakinn 4
220 Hafnarfjörður
201.1 m2
Einbýlishús
725
671 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin