KOMIÐ ER SAMÞYKKT KAUPTILBOÐ Í EIGNINA SEM NÚ ER Í FJÁRMÖGNUNARFERLI
Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905, kynna í einkasölu, Suðurgötu 46, 230 Keflavík;
Steinteypt, 6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum með stórum lokuðum garði og bílskúr. Möguleiki á útleigu.
- Húsið er skráð 162 m2 þar af er sérstæður bílskúr 22,8 m2.
- Möguleiki á að skipta upp í 2 íbúðarrými, efri og neðri hæð.
- Báðar hæðir jafnstórar 69,6 fm með sérinngangi og baðherbergi.
- Bílskúr 22,8 fm þarfnast viðhalds: rafmagn, hiti og niðurfall
- Endurnýjað salerni efri hæðar 2024
- Lóðin (387 fm) snýr til suðurs með palli og heitum potti
Eignin skiptist í: 6 herbergi, 2 baðherbergi/salerni, 2 forstofur, eldhús, þvottahús og geymslu.
Steypt plata er á milli hæða og einnig að þaki.
Efri hæð: Forstofa, hol, eldhús, svefnherbergi, 2 stofur og baðherbergi. Geymsluloft í risi.
Neðri hæð: Forstofa, hol, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Efri hæð: Gengið er upp steyptar tröppur og inn á hæðina.
Forstofa: Flísalögð
Gangur/hol: Flísalagður. Þaðan er gengið inn í aðrar vistarverur hæðarinnar svo og niður á neðri hæðina.
Eldhús: Flísalagt. L-laga innrétting. Tvöfaldur ísskápur, uppþvottavél og vifta. Nýlegt helluborð, ofn og vaskur. Öll tæki geta fylgt.
Borðstofa: Nýverið var opnað á milli eldhúss og herbergis(borðstofu). Á eftir að ganga frá sári og setja gólfefni. 2 gluggar.
2 samliggjandi stofur: Flísalagðar með útgengi á yfirbyggðar svalir og þaðan á pall.
Salerni: Endurnýjað apríl 2024: Flísalagt, upphengt salerni, hvít vaskinnrétting, gluggi.
Geymsluloft í risi (steypt plata): Loftun, rafmagn
Neðri hæð: Undir tröppum efri hæðar er sér inngangur inn í neðri hæðina.
Forstofa: Flísalögð.
Gangur/hol: Flotað. Þaðan er gengið inn í aðrar vistarverur hæðarinnar svo og upp á efri hæðina.
3 Svefnherbergi: Öll með skápum sem fylgja. 2 parketlögð og eitt teppalagt. 2 rúmgóð og eitt minna.
Baðherbergi: Mjög rúmgott. Flísalagt á gólfi og einum vegg. Hornbaðkar, upphengdt salerni og viðarvaskinnréttingu.
Þvottahús: Flísalagt með opnanlegum glugga.
Geymsla: Af forstofu. Með glugga.
Bílskúr: Sérstæður 22,8 fm þarfnast viðhalds: rafmagn, hiti og niðurfall. Gott bílastæði er fyrir framan bílskúrinn.
Lóð: Lóðin er vel nýtt og aflokuð (hundavæn). Stór pallur ca 60 fermetrar með skjólveggjum er við húsið, með heitum potti.
Geymsluskúr er á pallinum.
Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 695-8905 eða elin@valholl.is