Fasteignaleitin
Skráð 15. apríl 2026

Hverfisgata 46

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
177.2 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
145.000.000 kr.
Fermetraverð
818.284 kr./m2
Fasteignamat
113.150.000 kr.
Brunabótamat
79.970.000 kr.
Mynd af Þórey Ólafsdóttir
Þórey Ólafsdóttir
Löggiltur fasteignasali
www.fastlind.isEignalisti
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2076459
Landnúmer
121212
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
endurbætt að hluta
Raflagnir
Endurbætt að hluta
Gluggar / Gler
endurbættir að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðvestur svalir
Lóð
100
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Gallar
Vert er að benda á viðhaldsþörf a bílskúrsþaki, móðu í nokkrum glerjum, vatn í svalahurð á efri hæð og rakaummerki í kjallara og stofu við bílskúr.
LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu Hverfisgötu 46 – fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús með bílskúr á einum besta stað í Hafnarfirði. Húsið stendur á horni Hverfisgötu og Mjósunds, steinsnar frá miðbæ Hafnarfjarðar. Um er að ræða sjarmerandi og vel skipulagða eign með fjórum svefnherbergjum, björtu alrými og skjólgóðri lóð sem snýr vel við sólu. Frá svölum hússins er fallegt útsýni og gott rými í næsta nágrenni.

Húsið er steypt, byggt árið 1929 og hannað af Guðjóni Arngrímssyni. Eignin hefur fengið gott viðhald og verið talsvert endurnýjuð í gegnum tíðina, þar á meðal var eldhús endurnýjað árið 2021 ásamt gólfefnum að hluta og svölum bætt við sem snúa út á baklóð.

Birt stærð eignarinnar er 177,2 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er bílskúr 23,6 fm.

Eignin skiptist á þrjár hæðir og ris. Á aðalhæð er forstofa, gestasalerni, gangur/hol, eldhús, stofa og borðstofa í opnu rými. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi (eitt nýtt sem sjónvarpsherbergi), baðherbergi og aðgengi að risi með vinnuaðstöðu. Í kjallara er herbergi með sérinngangi, ásamt þvottahúsi og geymslu.

 
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT - Allar frekari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is
 
Nánari lýsing, aðalhæð
Forstofa
snyrtileg með fatahirslum og setbekk, flísar á gólfi.
Gestasalerni innaf forstofu, flísar á gólfi.
Eldhús rúmgott og endurnýjað árið 2021 með góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu, framhliðar frá Haf Studio, kvartsteinn á borðum og innbyggður ísskápur og frystir, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými með útgengi á suðursvalir sem snúa út í bakgarð, parket á gólfi.

Nánari lýsing, efri hæð
Svefnherbergi I
rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi II, parket á gólfi.
Svefnherbergi III / sjónvarpsstofa (veggur tekinn niður), útgengi á suðursvalir sem snúa út í bakgarð.
Baðherbergi flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni, baðkari með sturtuaðstöðu og handklæðaofni, flísar á gólfi.

Stigi upp í ris þar sem er skrifstofu- og vinnuaðstaða.

Nánari lýsing, kjallari með skertri lofthæð
Herbergi
rúmgott með sérinngangi.
Þvottahús með nýlegri innréttingu, flísar á gólfi.
Geymsla.

Bílskúr með heitu og köldu vatni, innangengt bæði frá götu og með gönguhurð út í bakgarð.

Lóðin er afar rúmgóð, afgirt og snýr í suðvestur. Skjólgóður garður með góðri aðstöðu, undir svölum er köld geymsla.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
 

Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/10/2024102.900.000 kr.138.000.000 kr.177.2 m2778.781 kr.
31/05/202270.100.000 kr.127.000.000 kr.177.2 m2716.704 kr.
11/10/201741.550.000 kr.75.000.000 kr.177.2 m2423.250 kr.
14/11/201334.000.000 kr.43.000.000 kr.177.2 m2242.663 kr.
21/11/201230.550.000 kr.38.000.000 kr.177.2 m2214.446 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1960
23.6 m2
Fasteignanúmer
2076459
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.620.000 kr.

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skólabrekka 3
Bílskúr
Skoða eignina Skólabrekka 3
Skólabrekka 3
750 Fáskrúðsfjörður
172.8 m2
Einbýlishús
413
336 þ.kr./m2
58.000.000 kr.
Skoða eignina Heiðarlundur 19
Opið hús:28. maí kl 18:00-18:30
Skoða eignina Heiðarlundur 19
Heiðarlundur 19
210 Garðabær
224 m2
Einbýlishús
614
846 þ.kr./m2
189.500.000 kr.
Skoða eignina Laxakvísl 18
Opið hús:27. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Laxakvísl 18
Laxakvísl 18
110 Reykjavík
201 m2
Raðhús
724
820 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Skoða eignina Hörgslundur 17
Bílskúr
Skoða eignina Hörgslundur 17
Hörgslundur 17
210 Garðabær
179.4 m2
Raðhús
513
930 þ.kr./m2
166.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin