LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu Hegranes 33 í Garðabæ, glæsilegt og mikið endurnýjað einbýlishús með rúmgóðum bílskúr, nýlegu garðhýsi og þremur aukaeiningum á neðri hæð. Eignin stendur á stórri 1.520 fm eignarlóð á eftirsóttum stað sunnan megin á Arnarnesinu þar sem stutt er í helstu þjónustu, fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði. Um er að ræða vandaða eign þar sem aðalhæð hússins hefur verið endurhönnuð og endurnýjuð af miklum metnaði. Innanhússhönnun var í höndum Rut Káradóttur og innréttingar og innihurðir voru sérsmíðaðar af Beyki smíðaverkstæði.
Birt stærð eignar er 377,9 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Þar af er aðalhæð skráð 189 fm, íbúðarrými á neðri hæð 107 fm og bílskúr 81,9 fm.
Allar frekari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is
Aðalhæðin hefur tekið stakkaskiptum þar sem innra skipulagi hefur verið breytt, op stækkuð og hækkuð og burður styrktur samkvæmt teikningum frá verkfræðistofu. Opið frá gangi inn í hol og eldhús hefur verið hækkað og breikkað, auk þess sem öll hurðargöt hafa verið samræmd og hækkuð. Í öllum aðalrýmum aðalhæðar, utan svefnherbergja, hafa verið lagðar ítalskar gólfflísar frá Ebson. Undir flísunum er gólfhiti og voru gólf flotuð upp á nýtt. Einangrunardúkur var lagður undir flísar. Í svefnherbergjum er gegnheilt, niðurlímt fiskibeinaparket frá Ebson og á efri hæð hafa allir ofnar verið endurnýjaðir. Allir innveggir á efri hæð voru opnaðir og endursmíðaðir og loftin í húsinu endurnýjuð með skuggafúgum
Eldhúsið hefur verið sérsmíðað af Beyki úr grábæsaðri eik samkvæmt hönnun Rut Káradóttur. Innréttingin er bæði falleg og vel útfærð, með miklu skápaplássi, hólf í gólf á einum vegg og sérlausnum sem falla einstaklega vel að rýminu. Þar má nefna innbyggðan pocket skáp sem fellur inn í innréttinguna, lýsingu inni í skáp og hentugan mjóan skáp með rafmagni sem nýtist meðal annars fyrir heimilistæki eða annan búnað. Í eldhúsinu eru tveir innbyggðir Liebherr ísskápar, annar þeirra með frysti og innbyggðri klakavél, auk innbyggðrar Miele uppþvottavélar, stórs djúps vasks og Miele XXL helluborðs með innbyggðri viftu. Á eyju er sérsmíðuð varaplata frá Beyki. Eldhúsið sameinar því mjög sterkt útlit og mikla notagildi.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar með aukinni lofthæð, arni og fallegu útsýni yfir voginn. Frá stofu er útgengt á um 12 fm vestursvalir. Í eldhúsi og stofu er einnig sérstakur loftdúkur með viðbótareinangrun og góðri hljóðvist. Lýsing á aðalhæð var hönnuð af Lumex.
Sjónvarpshol er opið að hluta inn í stofur og eldhús og tengir fjölskyldurými hússins saman á fallegan hátt. Þaðan er gengið út á skjólgóða suðurverönd og niður á timburpall með heitum potti, útisturtu og steinagufu. Á lóðinni er einnig nýlegt garðhýsi með rafmagni, flísalögðu gólfi og öflugum innrauðum hiturum
Hjónasvíta: Á svefnherbergisgangi hefur verið útbúin hjónasvíta með sérbaðherbergi þar sem gert er ráð fyrir opnu fataherbergi. Í baðrýminu er flísalögð sturta með hallandi gólfi, sérsmíðuð innrétting frá Beyki, innbyggð lýsing og loftræsting úr baðrými. Gessi tæki eru við sturtu, vask og salerniskassa, auk þess sem rafmagnsstýrðar CasaLisa rúllugardínur eru í hjónaherberginu. Hjónasvítan nýtist sem fallegt og vel útfært einkarými innan heimilisins.
Barnaherbergi: Tvö barnaherbergi eru á aðalhæð. Annað þeirra snýr út í garð. Hitt er mjög rúmgott, en tveimur herbergjum var breytt í eitt og því er mögulegt að skipta því aftur upp í tvö herbergi ef óskað er eftir því. Í báðum herbergjum er fallegt fiskibeinaparket.
Aðalbaðherbergi: Aðalbaðherbergi á efri hæð er rúmgott og fallegt með flísum á gólfi, upphengdu salerni, walk in sturtu, innréttingu, loftræstingu úr baðherbergi og vönduðum Gessi tækjum.
Gestasnyrting: Gestasnyrting er inn af forstofu. Þar er salerni og flísar á gólfi og gert hefur verið ráð fyrir vaski.
Á neðri hæð eru þrjár aukaeiningar sem henta vel til útleigu eða sem sveigjanleg nýting fyrir stórt heimili, fjölskyldu eða aðra búsetuþörf. Þar er einnig rúmgóður bílskúr með epoxy á gólfi, mælagrind og rafmagnsopnun á bílskúrshurðum.
Aukaíbúð 1: Íbúð 1 hefur sérinngang fyrir neðan útitröppur efri hæðar. Þar er forstofa með flísum á gólfi, þvottaaðstaða, eldhús og stofa í opnu rými, svefnherbergi, baðherbergi og geymsla undir stiga.
Aukaíbúð 2: íbúð 2 hefur sameiginlegan inngang á neðri hæð og skiptist í forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi. Þar hefur meðal annars verið settur nýr sturtuklefi.
Aukaeining 3: Eining sem er í fyrrum hluta bílskúrs og þar er svefn og seturými ásamt baðherbergi og aðstöðu til að útbúa eldhúsinnréttingu. Rafmagn hefur verið lagt upp á nýtt inni í þessari einingu. Sturta með hallandi gólfi og flísum ásamt vaski og salerni.
Þvottahús: Á neðri hæð hefur hefu verið útbúið nýtt þvottahús í fyrrum geymslu. Þar er ný rafmagnstafla og lagnir fyrir gólfhita, auk pláss fyrir tvær þvottavélar og tvo þurrkara. Frágangur og innréttingar eru þó ekki fullbúnar og hurð að þvottahúsi fylgir en á eftir að setja upp.
Endurnýjun og viðhald eignarinnar hefur verið mjög umfangsmikið en þó ekki lokið. Skipt hefur verið um skólp í húsinu og út í brunn í garði. Rafmagn hefur verið endurnýjað á allri efri hæð og ný rafmagnstafla sett upp, auk þess sem 3ja fasa rafmagn er í húsinu. Allir innveggir á efri hæð voru opnaðir og endursmíðaðir. Nýr varmaskiptir var settur í bílskúr. Loftgluggar hafa verið klæddir að innan upp á nýtt og gert ráð fyrir lýsingu í þeim. Þá hefur húsinu verið sinnt vel í gegnum tíðina og samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum voru gluggar á suðurhlið endurnýjaðir fyrir um 17 árum og aðrir gluggar fyrir um 12 árum. Þá voru þakjárn, þakpappi og rennur endurnýjuð fyrir um 8 árum og þakkantur yfirfarinn fyrir 7 árum.
Garðurinn er stór, skjólgóður og með góðu útisvæði. Bílaplan og stétt frá götu að húsi eru upphituð með affallsvatni og við húsið er einnig hleðslustöð fyrir rafbíla. Hegranes 33 er áhugaverð eign á einum eftirsóttasta stað Garðabæjar, þar sem sameinast stór og falleg lóð, vönduð hönnun, mikil gæði í efnisvali, glæsilegt fjölskyldurými á aðalhæð og fjölbreyttir nýtingarmöguleikar á neðri hæð.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is - Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.
Allir viðskiptavinir okkar fá Vildarkort Lindar en með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.