Fasteignaleitin
Skráð 10. ágúst 2025

Heklubyggð

SumarhúsSuðurland/Hella-851
71.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
Verð
80.000.000 kr.
Fermetraverð
1.123.596 kr./m2
Fasteignamat
38.137.000 kr.
Fasteignanúmer
2342319
Landnúmer
198151
Húsgerð
Sumarhús
Hæðir í húsi
1
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sumarhúsið í Hekluhrauni 10 er næstum fullklárað, með klæðningu og rafmagni. Þörf er á að gipsklæða að hluta og loka hluta veggja og frágang í kringum glugga.
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega fallegt sumarhús og fimm eignarlóðir um 8,4 hektarar á glæsilegum útsýnisstað á skipulögðu sumarhúsasvæði, við Heklu og Selsundslæk í Rangárþingi ytra. Lóð SH-2 er í skipulagi skilgreind sem staðsetning tjaldsvæða, svo miklir möguleikar eru í boði.  Um er að ræða sannkallaða náttúruperlu þar sem ríkir einstök kyrrð, víðáttumikið útsýni og stórbrotið landslag. Frá svæðinu má meðal annars sjá til Bjólfells og Búrfells. 

Staðsetningin býður upp á ótal möguleika fyrir þá sem vilja skapa sitt eigið athvarf í íslenskri náttúru, hvort sem er fyrir frístundir, hestamennsku, útivist eða uppbyggingu í ferðaþjónustu. Aðeins er um 1,5 klst. akstur frá Reykjavík og svipuð vegalengd frá svæðinu upp í Landmannalaugar.


Um ræðir sumarhús 71,2 fm. og fimm eignarlóðir 83.800 fm. (8,38 ha.) sem seljast saman og skiptast eftirfarandi:

Hekluhraun 10 fastanr. 234-2318:

Á Hekluhrauni 10 er búið að reisa fallegt og vel skipulagt 71,2 fm. sumarhús með stórbrotnu útsýni. Húsið samanstendur af stóru og björtu alrými með stofu og eldhúsi, tveimur svefnherbergjum og baðherbergi. Svefnloft er fyrir ofan annað svefnherbergið. Í eldhúsi eru vandaðar innréttingar frá Habitat. Allt efni á baðherbergjum frá Álfaborg og einnig blöndunartæki. Rennihurð í stofu er vegleg frá Marokkó. Kamína er í stofurými.  Hellulögð verönd er fyrir utan hús með rafmagnspotti. Húsið er hitað upp með varmadælu, hitavatnskútur er nýlegur. Mikið og gott útsýni er í allar áttir.  Samkvæmt skipulagsskilmálum er byggingarreitur rúmur og heimilt að reisa tvö sumarhús á lóðinni. Fjarlægð milli húsa innan lóðar skal vera minnst 20 m. en þó má gestahús vera nær. Hús skal vera staðsett í samráði við byggingarfulltrúa Rangárþings ytra.  Sumarhús skulu að jafnaði vera á einni hæð og skal leitast við að aðlaga hús sem best að landslagi. Bílastæði eru komin á Hekluhraun 10.
Stærð lóðar 16.400 fm.

Hekluhraun 12 fastanr. 234-2319:
Einstaklega falleg og gróin eignarlóð undir sumarhús. Kalt vatn og rafmagn við lóðarmörk, skv. deiliskipulagi. Samkvæmt skipulagsskilmálum er byggingarreitur rúmur og heimilt að reisa tvö sumarhús á lóðinni. Fjarlægð milli húsa innan lóðar skal vera minnst 20 m. en þó má gestahús vera nær. Hús skal vera staðsett í samráði við byggingarfulltrúa Rangárþings ytra.  Sumarhús skulu að jafnaði vera á einni hæð og skal leitast við að aðlaga hús sem best að landslagi. Heimilt að setja upp bílastæði.
Stærð lóðar er 13.000 fm.

Svínhagi SH 2 fastanr. 234-2426:

Vel staðsett lóð með möguleika á gistirekstri/tjaldsvæði. Samkvæmt skipulagi er SH-2 skilgreint sem staðsetning tjaldsvæða. Innan byggingarreits er heimilt að koma upp þjónustuhúsi ss. salerni, grillaðstöðu auk þess sem koma skal fyrir bílastæðum á svæðinu í tengslum við þjónustuaðstöðu.  Heimilt er að reisa allt að 150 fm. þjónustuhús auk salernis og hreinlætisaðstöðu allt að 30 fm. Hámarkshæð í mæni er 4,5 m. Þar er einnig gert ráð fyrir aðstöðu fyrir sorpgáma, kalt vatn og rafmagn við lóðarmörk, skv. deiliskipulagi.  Miklir möguleikar eru að tengja gistirekstur við ferðamannastraum á svæðið, sem er töluverður m.a. vegna Landmannalauga og nálægð við hringveg.
Stærð lóðar er 37.200 fm.

Svínhagi SH 1 fastanr. 234-2425: Stærð lóðar 9.300 fm.

Svínhagi SH 4 fastanr.234-2428: Stærð lóðar 7.900 fm.

Sumarhúsafélag er í Heklubyggð, sem er hagsmunafélag sumarhúsaeigenda á svæðinu en viðhald vega innan svæðisins er meginverkefni þess auk þess sem haldin er fjölskyldusamkoma á vegum félagsins hverja verslunarmannahelgi. 
Vegvísir: Þegar komið er að Svínhaga að sunnanverðu er farið inn á Rangárvallaveg (nr. 264) af Suðurlandsvegi austan Hellu. Vestan Gunnarholts er síðan farið inn á Þingskálaveg (nr. 268) sem liggur að Svínahaga. 

HÆGT ER AÐ SKOÐA SVÆÐIÐ Í ÞRÍVÍÐU UMHVERFI MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

UPPLÝSINGAR UM SKIPULAGSSKILMÁLA FRÍSTUNDABYGGÐAR Í HEKLUBYGGÐ MÁ SKOÐA MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

SKIPULAGSUPPDRÁTT MÁ SKOÐA MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
RE/MAX
http://www.remax.is

Myndir (55)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraunbrekkur 28
Húsafell úti forsiða .jpg
Skoða eignina Hraunbrekkur 28
Hraunbrekkur 28
320 Reykholt í Borgarfirði
128.8 m2
Sumarhús
44
698 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 20 íb. 304
Bílastæði
Áshamar 20 íb. 304
221 Hafnarfjörður
82.6 m2
Fjölbýlishús
312
835 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 20 íb. 305
Áshamar 20 íb. 305
221 Hafnarfjörður
108.9 m2
Fjölbýlishús
423
734 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Týsnes 8 eignarhluti 102
Týsnes 8 eignarhluti 102
603 Akureyri
121.2 m2
Atvinnuhúsn.
601 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin