Einstakt einbýlishús í upprunalegum stíl með öllum nútímaþægindum og aukaíbúð í viðbyggingu, í náttúrulegu umhverfi við Elliðavatn.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 863-8813 eða á elka@fstorg.is
Húsið er að stórum hluta nýtt og endurbyggt af mikilli alúð úr náttúrulegum og upprunalegum efnum. Það sameinar fallegan karakter frá 1925 og nútímaleg þægindi. Stór og náttúrulegur garður, heitur pottur og skjólgóð verönd. Einstök staðsetning með útivistarperlur við dyrnar og stutt í alla helstu þjónustu.
Í aðalhúsinu eru þrjú svefnherbergi, stofa, eldhús, skrifstofa og svefnherbergi, auk baðherbergis með þvottaaðstöðu og salernis. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi og sjónvarpshol, sem er leikherbergi í dag. Innangengt er í nýja viðbyggingu þar sem innréttuð hefur verið stúdíóíbúð með lítilli eldhúsinnréttingu og sérbaðherbergi. Í viðbyggingunni er einnig verkstæðisaðstaða með vaski, góð vinnuaðstaða og gott pláss fyrir útivistarbúnað.
Eignin er skráð 171,4 m² hjá HMS. Til viðbótar er loft yfir viðbyggingu, um 30 m² að gólffleti, þar af um 19,9 m² í fullri lofthæð, sem er ekki innifalið í skráðri stærð. Undir aðalhúsinu er auk þess um 59 m² geymslukjallari með lágri lofthæð, einnig umfram skráða fermetra.
Húsið er upprunalega norskt katalóghús sem var reist á Stokkseyri árið 1925. Árið 2014 var það flutt í Dimmuhvarf á nýjan steyptan sökkul með geymslukjallara og endurbyggt og stækkað verulega. Þá var sett nýtt þak, nýir gluggar og nýjar lagnir, húsið einangrað að nýju og klætt að utan og innan.
Nánari lýsing eignarinnar:
Forstofa er rúmgóð, flísalögð og með hita í gólfi.
Eldhús er með viðargólfi og smekklegri innréttingu og inn af því er búr með góðu geymsluplássi. Eldhúsið tengist bæði stofu og skrifstofu.
Stofan er björt og hlýleg með viðargólfi og ljósum panel á veggjum og í lofti. Skrifstofa tengist stofu og eldhúsi.
Hjónaherbergi er rúmgott með viðargólfi og góðu skápaplássi.
Baðherbergi og þvottaaðstaða eru í sameiginlegu rými með flísum og hita í gólfi, flísalagðri sturtu, góðri innréttingu og góðu borðplássi. Sérsalerni er með salerni og vaski, hita í gólfi og flísum á gólfi og upp á miðja veggi.
Á efri hæð eru tvö svefnherbergi og sjónvarpshol. Annað herbergið er lítið og notalegt, að hluta undir súð, með viðargólfi og skáp undir súð. Hitt herbergið er mjög rúmgott, að hluta undir súð, með viðargólfi, innbyggðum fataskáp og lokrekkju.
Sjónvarpsholið er á milli herbergjanna, með viðargólfi, og er nú nýtt sem leikherbergi.
Viðbyggingin er með sérinngangi, gólfhita og flísalögðum gólfum.
Í hluta hennar hefur nýlega verið innréttuð stúdíóíbúð með eldhúsinnréttingu og sérbaðherbergi. Þar er einnig rými sem nú er nýtt sem verkstæði og geymsla fyrir útivistarbúnað.
Á efri hæð er rúmgott loft sem áður var nýtt sem svefnherbergi en er vinnustofa í dag.
Viðbyggingin býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, svo sem aðstöðu fyrir ungmenni eða eldri fjölskyldumeðlimi, vinnuaðstöðu heima eða útleigu.
Samkvæmt upplýsingum seljenda er auðvelt að gera viðbygginguna að fullbúinni íbúð til útleigu en hún er skráð sem bílskúr hjá HMS.
Stór og gróinn garður umlykur húsið. Þar eru heitur pottur, skjólgóð verönd og gróðurkassar. Á lóðinni er einnig óeinangraður geymsluskúr sem var byggður árið 2015.
Umhverfið við Elliðavatn býður upp á fjölbreytta útivist í náttúrunni en jafnframt er stutt í alla helstu þjónustu.
Endurbætur og framkvæmdir samkvæmt upplýsingum seljenda:
Á eignarhaldstíma núverandi eigenda hefur verið innréttuð stúdíóíbúð í hluta bílskúrs. Þar var útbúið nýtt, fullbúið baðherbergi ásamt tilheyrandi pípu- og raflögnum. Inntaksgrind var færð og endurnýjuð og innréttingar endurnýjaðar á öðru baðherbergi. Stýring fyrir heitan pott var endurgerð. Jafnframt var klætt með bárujárni þar sem fyrirhugað var að hafa bílskúrshurð. Smíða-, pípu- og raflagnavinna vegna framkvæmdanna var unnin af iðnaðarmönnum á tímabilinu maí–september.
Sjón er sögu ríkari!
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.