SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR Á FRÁBÆRUM STAÐ* *ÖRSTUTT Á STRÖND* *STUTT Í ALLA ÞJÓNUSTU* *SJÁVARSÝN* *BÍLAGEYMSLA*Nýjar vel skipulagðar flottar íbúðir á góðum stað rétt við ströndina í Guardamar, fallegum spænskum strandbæ með sál og sjarma. Um er að ræða 41 íbúð í 10 hæða fjölbýlishúsi sem stendur við Segura ánna, rétt við strandlínu Guardamar. Flottur sundlaugargarður og græn svæði. Tvö/þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Sér bílastæði í bílakjallara fylgir og sumum íbúðum fylgir einnig geymsla. Stutt á ströndina og sjarmerandi miðbæinn í Guardamar. Um 30 mín akstur suður frá Alicante.
Stutt er í alla helstu þjónustu, miðbæ Guardamar, úrval veitingastaða, fallega strönd og ótal góða golfvelli.
Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 00354 893 2495,
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869
Nánari lýsing:Rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt eldhúsi. Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Rúmgóðar svalir sem snúa flestar í austur í átt að hafi. Stæði í bílakjallara fylgir öllum íbúðum og sumum þeirra fylgir geymsla. Fallegur sundlaugargarður. Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. Fjarstýrðar rafmagnsgardínur.
Alicante flugvöllur er í ca. 45 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.
Verð miðað við gengi 1Evra=138ISK:
Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi. Verð frá 275.000 evrum (ISK 38.00.000) + 10% skattur og ca. 3% kostnaður við kaupin.Íbúðirnar afhendast tilbúnar í júní 2028.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: ný eign, sér garður, svalir, air con, sameiginlegur sundlaugargarður, bílastæði, geymsla, þaksvalir,
Svæði: Costa Blanca, Guardamar,