LANDMARK Fasteignamiðlun og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:Rúmgott og töluvert endurnýjað einbýlishús á tveimur hæðum á hornlóð við Traðarstíg 13 í Bolungarvík. **6 svefnherbergi ** 2 baðherbergi **Rúmgóð afgirt timburverönd og stór lóð
Á efri hæð er forstofa, stofa og borðstofa, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Á neðri hæð er forstofa/gangur, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og kyndiklefi.
Möguleiki á að loka á milli hæða og hafa sem tvær íbúðir.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:Íbúð á hæð 93,4 fm merkt 01-0101, íbúðarherb í kjall 49,4 fm merkt 01-0001 og bílskúr(sem búið er að breyta í herbergi með útgönguhurð) 44 fm merkt 01-0002.
Nánari lýsing efri hæðar:Forstofa með fataskáp og flísar á gólfi.
Hol með harðparket á gólfi.
Stofa með harðparket á gólfi, timburstigi niður á neðri hæð hússins úr stofu.
Borðstofa með parket á gólfi.
Eldhús er rúmgott með flísar á milli efri og neðri skápa, tengi fyrir uppþvottavél, span helluborð og bakarofn í vinnuhæð. Hiti í gólfi og harðparket.
Baðherbergi er flísalagt með hornbaðkari, innrétting með skúffum, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Hjónaherbergi með fataskápum, fastur höfðagafl með baklýsingu og rafmagnstenglum og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi með harðparketi á gólfi.
Nýlegur tréstigi er á milli hæða, úr stofu niður í forstofu.
Nánari lýsing neðri hæðar:Forstofa/gangur með flísum á gólfi, sérútgangur þar með nýlegri hurð.
Rúmgott herbergi (áður bílskúr) með parket á gólfi, útgengt á stóran sólpall þar.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtu.
Þrjú svefnherbergi með parket á gólfi.
Þvottahús með vask, málað steypt gólf og opnanlegur gluggi.
Kyndiklefi við enda gangs með hillum, flísar á gólfi.
Hitalagnir í gólfi á neðri hæð, nema í þvottahúsi.
Rúmgóð afgirt timburverönd á tveimur pöllum við suður- og austurhlið hússins, stór lóð liggur í kringum húsið, þvottasnúrur á lóð og stæði fyrir 3-4 bíla.
Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@landmark.is Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat