
BÓKIÐ TÍMA Í EINKASKOÐUN MILLI 09:00-17:00 ALLA VIRKA DAGA HJÁ ÁSDÍSI ÓSK VALSDÓTTUR, LÖGGILTUM FASTEIGNASALA Í SÍMA: 863-0402 EÐA EMAIL: asdis@husaskjol.is
Glæsileg og vönduð 5 herbergja 143,6 fm íbúð, á fyrstu hæð (ekki jarðhæð) við Hafnarbraut 6, 200 Kópavogi. Lyfta er í húsinu. Tveir sólríkir sérafnotareitir fylgja íbúðinni, bæði fyrir framan hús til vesturs og fyrir aftan hús til austurs. Íbúðinni fylgir stæði í upphituðum bílakjallara með möguleika á tengi fyrir hleðslustöð. Íbúðin er mjög vel skipulögð og öll rými eru rúmgóð. Fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni, baðherbergi með walk-in sturtu, gestasalerni og sér þvottaherbergi með innréttingu. Einstaklega skemmtileg fjölskylduíbúð. Íbúðin er með sér loftræstingu með varmaskipti sem stuðlar að góðum loftgæðum, tryggir minni rakamyndun innandyra og eykur hljóðgæði þar sem minni þörf er á að vera með opna glugga. Góð hljóðeinangrun er í íbúðinni og yfir sumartímann næst sól frá morgni til kvölds þar sem bæði er bakgarður og stór pallur að framan.
Smelltu hér til að skoða eignamyndband
SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR EIGNINA
Lýsing eignar: Komið er inn í forstofu með harðparketi og föstum fataskápum. Sérþvottahús innan íbúðar með flísum á gólfi, vaski og innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og snúrur. Gestasalerni er með flísum á gólfi sem og einum vegg, upphengt salerni. 4 svefnherbergi, öll mjög rúmgóð með harðparketi og skápum. Frá einu herbergi er gengið út á stóran sérafnotareit. Baðherbergi er með flísalögðu gólfi og veggir að mestu, Walk in sturta, upphengt salerni, innréttingar og gluggi. Eldhús og stofa er rúmgott alrými. Góð eldhúsinnrétting með sérsmíðuðum innréttingum frá Voke-III, efri og neðri skápar ásamt eyju og harðparket á gólfi. Frá stofu er gengið út á stóran pall með sjávarútsýni.
Gott loftræstikerfi og vel hljóðeinangruð íbúð.
Merkt sérbílastæði fylgir íbúðinni. Einnig er sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Hafnarbraut 6 er vel staðsett hús í rólegu hverfi og stutt í allar áttir. Algjör útivistarparadís með fallegum hjóla- og gönguleiðum í allar áttir. Fjölskylduvænt svæði með margskonar þjónustu á svæðinu, s.s. sundlaug með líkamsrækt (Katla fitness), Brikk bakarí, 2 veitingastaðir, Spar verslun, snyrtistofa, Go Move líkamsrækt, Sky Lagoon, banki, bókasafn, kirkja, skólar, leikskólar og Salurinn tónleikahús.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402
Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 28/06/2024 | 98.850.000 kr. | 117.900.000 kr. | 143.6 m2 | 821.030 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
105 | 130,7 | 126,9 | ||
815 | 148,4 | 89,9 | ||
200 | 98,7 | 79,5 | ||
101 | 130 | 144,9 | ||
311 | 138,5 | 69,9 | ||
105 | 150 | 114,9 |