STOFN Fasteignasala kynnir:Um er að ræða vel skipulagða og bjarta 80,9 fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með 15,7 fm svölum í nýlegu lyftuhúsi við Hringhamar 11 í Hamranesi, 221 Hafnarfirði. Eignin hefur að geyma vandaðan frágang, góðar innréttingar og skemmtilegt alrými með útgengi á rúmgóðar svalir.
Eignin er merkt
02-08, fastanúmer
252-9162, ásamt tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindum.
Íbúðin skiptist í: Forstofu/anddyri, gang, tvö svefnherbergi, baðherbergi með tengingu fyrir þvottavél og þurrkara, eldhús og stofu í opnu alrými, svalir og sérgeymslu innan sameignar. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum er húsið Svansvottað og með sérstakt loftræstikerfi fyrir hverja íbúð, sem er hluti af vönduðum frágangi eignarinnar.
"Smelltu hér til að skoða myndband um eignina"Helstu kostir:- 3ja herbergja íbúð á 2. hæð
- Rúmgóðar og skjólgóðar 15,7 fm svalir
- Vandaður frágangur og góðar innréttingar
- Sérgeymsla innan sameignar
- Lyftuhús
- Svansvottað hús samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum
"Smelltu hér til að sækja söluyfirlit"Eignin skiptist í:Forstofu/anddyri, gang, hjónaherbergi, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu í sameiginlegu rými, svalir og sérgeymslu innan sameignar.
Lýsing eignar:Forstofa / anddyri: Fataskápar og postulínsflísar á gólfi.
Gangur: Breiður gangur með postulínsflísum á gólfi.
Eldhús: Innrétting frá Axis, innbyggður ísskápur, uppþvottavél og ofn í vinnuhæð. Eldhúseyja með steinplötu frá S.G. Helgasyni. Útgengt er á svalir frá alrými.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa í opnu rými með eldhúsi. Postulínsflísar á gólfi.
Svalir: 15,7 fm. Rúmgóðar og skjólgóðar svalir með góðu plássi fyrir útihúsgögn.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðu skápaplássi og postulínsflísum á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum og postulínsflísum á gólfi.
Baðherbergi: Innrétting frá Axis, upphengt salerni, walk-in sturta, handklæðaofn, skápar, flísar á veggjum og gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla: Sérgeymsla innan sameignar.
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla ásamt aðstöðu fyrir minniháttar hjólaviðgerðir.
Gólfefni:Á allri íbúðinni, utan baðherbergis, eru sérpantaðar ítalskar postulínsflísar, Marvel Shine – Calacatta Imperiale frá Vídd. Á baðherbergi eru flísar frá Parka.
Loftræsting:Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum er í íbúðinni sérstakt loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Kerfið dregur inn ferskt loft í vistarverur og dregur loft út úr baðherbergi, eldhúsi og þvottaaðstöðu.
Umhverfi:Í nágrenni eru skólar og leikskólar auk göngu- og hjólaleiða. Einnig er stutt í útivistarsvæði, þar á meðal Ástjörn, Hvaleyrarvatn og Helgafell.
Byggingaraðili:MótX.
Nánari upplýsingar veitir:
Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali, meðlimur í
Félagi fasteignasala, í síma
661 7788 eða á netfanginu
bo@stofnfasteignasala.is.Við hjá
STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – Setjum þig í fyrsta sætið.