*** MERKIGERÐI 2 - 300 AKRANES ***
PRIMA fasteignir og Oliver Bergmann lögg.fasteignasali kynna: 378,5 fm einbýlishús á 3.hæðum, þar af er 94.9fm nýlegum bílksúr sem er Axelsbúð/verslun í dag. WC, heitt og kalt vatni. Eignin skiptist í andyri, eldhús, stofu sem og borðstofu. , 5 rúmgóð svefnherberbergi (möguleiki að búa til fleiri svefnherb.), 2 baðherbergi á sitthvorri hæð. Þvottahús og geymsla í kjallara ásamt 3 herbergjum. Nýleg suður verönd. Svalir á 2. hæð. Húsið stendur á 1.077 fm eignalóð.
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN / FÁ SENT SÖLUYFIRLITLýsing eignar:1.hæð:Forstofa: Flísar á gólfi. Stigi niður í þvottahús/kjallara.
Hol: Flísar á gólfi. Fataskápur. Parketlagður stigi á 2. hæð.
Baðherbergi: Flísalagt gólf, vaskur og wc. Sturtuklefi.
Eldhús: Eldhús er með dúkaflísum og plastborðplötu. Borðkrókur.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt stofa sem og borðstofa með parket á gólfi. Gengið út á nýlega rúmgóða verönd. Rúmgóð geymsla undir verönd. Fallegt sjávar útsýni.
Svefnerbergi: Rúmgott með parket á gólfi. Stór eldri fataskápur.
2.hæð:Hol: Parket á gólfi. Fataskot/slá.
Hjónaherbergi: Rúmgott, parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Rúmgott, dúkur á gólfi. skápur inn í vegg.
Svefnherbergi II: Rúmgott, parket á gólfi.skápur inn í vegg. Fallegt sjávar útsýni.
Svefnherbergi III: Rúmgott, parket á gólfi.skápur inn í vegg.
Herbergi: steypt gólf. Gengið út á svalir.
Baðherbergi: Flísalagt bæði gólf og veggir. Sturta. Vaskur. Gluggi á baðherbergi.
Kjallari: Sérinngangur undir tröppum og annar inngangur í gegnum bílskúr/Axelsbúð.
Þvottahús, geymsla sem og hitakompa. Varmaskiptir.
3 Herbergi/svefnherbergi og gangur með steyptu gólfi.
Bílskúr / Axelsbúð: Nýlegur 94 fm. Bílskúr/verslun. Klæddur að utan, heitt og kalt vatn.
WC í bilskur - möguleiki á að bæta við sturtu.
Beint aðgengi í kjallara úr bílskúr.
Annað: Búið að einangra kjallara að utanveðru. Skipt var um alla glugga 2023. Þak var yfirfarið og málað 2023. Klæðning tekin af og múrviðgert að hluta til 2024.
Húsið stendur á 1.077 fm eignalóð og býður því uppá mikla möguleika.Nánari upplýsingar veitir:Oliver Bergmann löggiltur fasteignasali / s.
787 3505 /
oliver@primafasteignir.is__________________________________________________________________________________________
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRIMA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.