Fasteignaleitin
Skráð 24. feb. 2026

Grundarstígur 11

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
111.2 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
853.417 kr./m2
Fasteignamat
93.200.000 kr.
Brunabótamat
52.900.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2006977
Landnúmer
102048
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt - óvitað
Raflagnir
Upprunalegt - óvitað
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta 2025 - sjá yfirlýsingu seljanda
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir 2020
Þak
Endurnýjað 2020 - sjá yfirlýsingu seljanda
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Þaksvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Grundarstígur 11 – íbúð 201, 101 Reykjavík.

Einstaklega falleg, björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í sjarmerandi og vönduðu uppgerðu húsi í hjarta Þingholtanna. Íbúðin er 111,2 fm og nýtur auk þess 22,5 fm skjólsælla þaksvala með viðargólfi og skjólveggjum. Einstök viðbót við rýmið og frábær staður til að njóta borgarlífsins.

Helstu kostir:
22,5 fm þaksvalir – skjólgóðar, með viðargólfi og fallegu útsýni yfir borgina
Mikil lofthæð og stórir gluggar – bjart og hlýlegt andrúmsloft
Tvær samliggjandi stofur með rennihurð á milli (hægt að skipta rýminu upp)
Eina íbúðin á hæðinni


Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Ómar Hjaltason astmf. S:7789090 eða omar@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur


Húsið hefur fengið mikið viðhald á undanförnum árum (sjá nánar hér að neðan)

Nánari lýsing eignar
Forstofa/hol: Parketlagt, með fatahengi.
Stofur: Rúmgóðar, bjartar og parketlagðar samliggjandi stofur með rennihurð á milli og því auðvelt að aðlaga rýmið eftir þörfum. Úr stofum er útgengt á 22,5 fm þakverönd með viðargólfi, skjólveggjum og fallegu útsýni yfir borgina.
Eldhús: Mjög rúmgott og bjart eldhús með miklum gluggum og borðaðstöðu. Ljósar viðarinnréttingar með flísum á milli skápa, tengi fyrir uppþvottavél og tengi fyrir þurrkara.
Svefnherbergi: Tvö góð svefnherbergi. Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum og fallegum bogadregnum glugga. Barnaherbergi er parketlagt.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir, innrétting, vegghengt WC, handklæðaofn, sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél.

Í kjallara hússins
Sérgeymsla 4,6 fm
Sameiginlegt þvottahús með gluggum
Sameiginleg hjólageymsla með sérinngangi af lóð

Húsið lítur vel út að utan og hefur verið farið í umtalsvert viðhald síðustu ár, m.a.:
  • 2025 Frárennsli endurnýjað
  • 2020: Húsið múrviðgert að utan og steinað upp á nýtt
  • 2020: Gluggar og gler endurnýjuð (nema í stigahúsi)
  • 2020: Þakjárn, þakpappi, þakrennur og niðurföll endurnýjuð
  • 2020: Skipt um útihurðir á þvottahúsi og geymslugangi
  • 2010: Klóaklagnir endurnýjaðar

Stigahús er snyrtilegt og bjart, nýlega málað og með vinyldúk á stiga milli hæða.

Staðsetning
Staðsetning eignarinnar er frábær á rólegum og grónum stað í miðborginni – stutt er í verslun, þjónustu, kaffihús, veitingastaði og allt það sem miðbærinn hefur upp á að bjóða.

Seljandi hefur ekki búið sjálf í íbúðinni, íbúðin hefur verið í útleigu.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
12/01/202484.300.000 kr.91.000.000 kr.111.2 m2818.345 kr.
01/11/201744.500.000 kr.55.500.000 kr.111.2 m2499.100 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Drekavellir 4
3D Sýn
Opið hús:21. mars kl 12:00-13:00
Skoða eignina Drekavellir 4
Drekavellir 4
221 Hafnarfjörður
157.4 m2
Fjölbýlishús
514
698 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb311
Bílastæði
Opið hús:19. mars kl 17:30-18:00
Vetrarbraut 2-4 íb311
210 Garðabær
60.8 m2
Fjölbýlishús
211
1150 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb109
Bílastæði
Opið hús:19. mars kl 17:30-18:00
Vetrarbraut 2-4 íb109
210 Garðabær
104.2 m2
Fjölbýlishús
413
958 þ.kr./m2
99.800.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb212
Bílastæði
Opið hús:19. mars kl 17:30-18:00
Vetrarbraut 2-4 íb212
210 Garðabær
119.5 m2
Fjölbýlishús
312
1003 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin