Fasteignaleitin
Skráð 7. júlí 2026

Bríetartún 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
52.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
47.900.000 kr.
Fermetraverð
919.386 kr./m2
Brunabótamat
26.700.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20096081
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Höfði fasteignasala kynnir tveggja herbergja íbúð á fjórðu hæð við Bríetartún 6 í Reykjavík. Eignin er skráð 52,1 m², þar af íbúð 48,1 m² og tvær sérgeymslur samtals 4,0 m² samkvæmt fasteignaskrá.

Eignin nýtur góðrar staðsetningar og suðursvala sem snúa að stóru og skjólgóðu garðrými milli húsaþyrpinga með leiksvæði og opnum útisvæðum. Stutt er í miðborg Reykjavíkur, Borgartún, verslun, þjónustu, veitingastaði, almenningssamgöngur og fjölbreytta útivist.

Lýsing: Komið er inn í forstofu með fatahengi. Á gólfi í forstofu, gangi, stofu og eldhúsi er dúkur. Rúmgott svefnherbergi með stórum fataskáp með rennihurðum og harðparketi á gólfi. Frá herberginu er útgengt á suðursvalir sem snúa að stóru og skjólgóðu garðrými milli húsaþyrpinga, þar sem er leiksvæði og gott opið útirými. Baðherbergi með flísum á gólfi og í sturtu, upphengdu salerni, handlaug með speglaskáp og flísalagðri sturtuaðstöðu, mósaíkflísar við handlaug og innbyggðan salerniskassa setja fallegan svip á rýmið. Eldhús opið að hluta við stofu. Þar er eldri innrétting með keramikhelluborði, bakarofni, veggháfi og tengi fyrir uppþvottavé. Stofan er opin að hluta við eldhús. Hún er að hluta undir súð sem gefur rýminu ákveðinn karakter.

Geymslur og sameign: Á stigapalli fyrir framan íbúðina er 0,8 m² sérgeymsla með hillum. Í kjallara er 3,2 m² sérgeymsla. Í sameign eru sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymsla. Sameign hússins er snyrtileg og ber þess merki að viðhaldi hefur verið sinnt vel í gegnum árin.

Framkvæmdir og viðhald hússins: Á síðustu árum hefur verið ráðist í ýmsar framkvæmdir og viðhald á húsinu. Árið 2025 var drenað fyrir aftan húsið og skólplögn í þvottahúsi endurnýjuð að hluta. Á undanförnum árum hefur jafnframt verið skipt um útidyrahurð og dyrasíma að framan, unnið að múrviðgerðum í kjallara hússins og ráðist í endurbætur á lóð, þar á meðal byggingu skjólveggjar fyrir sorptunnur, gerð göngustígs að húsinu og lagningu á nýju grasi. Árið 2019 var skipt um teppi á stigagangi. Samþykkt hefur verið á húsfundi að afla tilboða í málun á ytra byrði hússins.Að sögn (og sjáanlega) var skipt um glugga í húsinu fyrir rúmum áratug síðan.

Umhverfið: Frá suðursvölum íbúðarinnar er útsýni yfir stórt og skjólgott garðrými milli húsaþyrpinga með leiksvæði og opnum útisvæðum sem nýtast íbúum vel. Garðrýmið skapar rólegt umhverfi á þessum eftirsótta stað. Bríetartún er vinsælt íbúðahverfi þar sem stutt er í miðborg Reykjavíkur, Borgartún, strandstíginn, verslanir, þjónustu og útivist.

Frekari upplýsingar veitir:
Kristinn Tómasson
Viðskiptafræðingur MBA
Löggiltur fasteignasali
Sími: 820 6797
kristinn@hofdi.is

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Höfði Fasteignasala
http://www.hofdi.is

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ljósvallagata 22
Ljósvallagata 22
101 Reykjavík
69.8 m2
Fjölbýlishús
312
967 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Laugarnesvegur 44
Laugarnesvegur 44
105 Reykjavík
70.3 m2
Fjölbýlishús
311
895 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Kleppsvegur 32
IMG_1653.JPG
Skoða eignina Kleppsvegur 32
Kleppsvegur 32
105 Reykjavík
59 m2
Fjölbýlishús
2
958 þ.kr./m2
56.500.000 kr.
Skoða eignina Síðumúli 39
Skoða eignina Síðumúli 39
Síðumúli 39
108 Reykjavík
63.2 m2
Fjölbýlishús
211
926 þ.kr./m2
58.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin