VALHÖLL OG KRISTÍN EINARS. lögg.fasteignasali kynna nýtt í einkasölu:;
Glæsileg 3ja-4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og afgirtri verönd til suð-austurs. Íbúðin er björt og rúmgóð, eldhús með vandaðri hvítri innréttingu tengist stofu í opnu rými, baðherbergi er flíslagt ljósum flísum, þvottahús, tvö rúmgóð svefnherbergi auk vinnuherbergis/geymslu og þaðan er útgangur á sérafnotareit til norð-vesturs. Á gólfum er eikarparket.
Nánari lýsing:
Forstofa með stórum fataskáp. Flísar á gólfi.
Eldhús með fallegri hvítri innréttingu og vönduðum tækjum, eldhús tengist stofu í opnu rými.
Stofa er björt og mjög rúmgóð, útgengi á afgirta verönd til suð-austurs.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum eikarfataskápum.
Barnaherbergi er rúmgott með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum, falleg innrétting og baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahús með flísum á gólfi. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur.
Herbergi/geymsla er innaf forstofu, með flísalögðu gólfi, útgengi á norð-vestur verönd.
Gólfefni, íbúðin er öll lögð eikarparketi fyrir utan votrýmin.
Geymslur eru tvær. Lítil útigeymsla er við hlið íbúðar (undir tröppum).
Önnur þeirra upphituð en hin er köld. Þær eru staðsettar við inngang og teljast ekki inni í fm fjölda íbúðarinnar.
Að sögn eigenda hafa eftirfarandi framkvæmdir átt sér stað undanfarin ár.
* Innrétting í þvottahúsi 2021
* Nýjar gardínur sérsniðnar í alla stofuglugga og svefnherbergisglugga.
* Flísar i forstofu & aukaherbergi/geymslu endurnýjaðar 2023/4
*Pallahurð endurnýjuð 2024.
* Nýir skápar i barnaherbergi 2024/5
*Fúgur milli flísa í baðherbergi endurnýjaðar 2025.
* Blöndunartæki i sturtu og baði endurnýjuð 2026
Húsið lítur vel út að utan og aðkoma snyrtileg.
Lítil útigeymsla er við hlið íbúðar (undir tröppum).
Á lóðinni eru mörg bílastæði með uppsettum sameiginlegum rafhleðslustöðvum.
Glæsileg íbúð í vinsælu hverfi þar sem stutt er í skóla, íþróttahús, verslun og þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir:
Kristín Einarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.894 3003 / kristin@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. VALHÖLL fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.