Fasteignaleitin
Skráð 7. apríl 2024
Deila eign
Deila

Eikarlundur 24

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
288.6 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
130.000.000 kr.
Fermetraverð
450.450 kr./m2
Fasteignamat
116.600.000 kr.
Brunabótamat
134.000.000 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Byggt 1978
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Útsýni
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2145865
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Árið 2008 voru tenglar endurnýjaðir og öryggi í töflu.
Frárennslislagnir
Upprunalegar. Dren var endurnýjað af fyrri eiganda.
Gluggar / Gler
Oregon pine gluggar. Búið er að endurnýja nokkur gler
Þak
Var endurnýjað á árunum 2020 - 2021
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita - gólfhiti er á baðherbergi og í öðru svefnherberginu á neðri hæðinni. Fyrri eigandi hafði endurnýjað ofna.
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Brot er í stétt við aðalinngang.
Eignin er ekki að öllu leyti í samræmi við teikningar. 
Gömul ummerki eru um leka á baðherbergi á efri pallinum, síðan þá er búið að endurnýja þak. 
Eikarlundur 24 - Vandað 7 herbergja einbýlishús á þremur pöllum og með sambyggðum bílskúr á vinsælum stað á Brekkunni - Heildarstærð 288,6 m²

** Eignin er seld með fyrirvara **

Eignin skiptist með eftirtöldum hætti, 
Aðal hæð:
Forstofa, snyrting, eldhús, búr, borðstofa, stofa, bakinngangur og þvottahús.
Neðri pallur: Hol, sjónvarpsherbergi, tvö barnaherbergi og baðherbergi.
Efri pallur: Hol, hjónaherbergi, baðherbergi, tvö barnaherbergi og vinnuherbergi. 

Forstofa er björt og opin og með aukinn lofthæð. Ljósar flísar er á gólfi og innfelld lýsing í lofti. Úr forstofu er gangur inn í eldhús og á ganginum er stór fataskápur og snyrting. 
Annar inngangur er á norðurhlið hússins við hliðina á bílskúrnum, þar eru dökkar flísar á gólfum og opinn skápur. 
Þvottahús er með dökkum flísum á gólfi og ljósum flísum á hluta veggja. Ljós sprautulökkuð innrétting og opnanlegur gluggi.  
Eldhús, vönduð hvít innrétting með viðar bekkplötu og dökkum flísum á milli skápa. Mjög gott skápapláss. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél. Siemens ofn og helluborð og electrolux örbylgju- og grillofn. Kork flísar eru á gólfi og innfelld lýsing í lofti. Inn af eldhúsinu er búr með samskonar gólfefnum, hillum og opnanlegum glugga. Hleri er í loftinu upp á lítið geymsluloft. 
Stofa og borðstofa liggja saman, með ljósum flísum á gólfi og stórum suðvestur gluggum. Loft eru tekin upp og með innfelldri lýsingu. Milli þeirra er steyptur arin. Skemmtilegt útsýni er úr stofunni upp á Súlur og Fálkafell. 

Efri pallur
Hol
er með ljósum flísum á gólfi og gluggum til suðurs. Loft er tekið upp. 
Hjónaherbergi er ágætlega rúmgott, með ljósum flísum á gólfii og stórum fataskáp. Innangengt er úr hjónaherberginu inn á baðherbergið.
Baðherbergi er við hliðina á hjónaherberginu og þar eru ljósar flísar á gólfi, ljós sprautulökkuð innrétting, wc, handklæðaofn, sturtuklefi og opnanlegur gluggi. 
Barnaherbergin eru tvö á hæðinni, bæði með ljósum flísum á gólfi. 
Vinnuherbergi/ skrifstofa er við endann á holinu með flísum á gólfi.

Neðri pallur
Sjónvarpsherbergið
er rúmgott, með ljósum flísum á gólfi og gluggum til tveggja átta. 
Barnaherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og annað með gólfhita. 
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, með eikar innréttingu, upphengdu wc, handklæðaofni, sturtu og opnanlegum glugga. Hiti er í gólfi. 
Hol er með ljósum flísum og parketi á gólfi.

Bílskúr er sambyggður við húsið og er hann skráður 34,6 m² að stærð. Tvær gönguhurðar, ein út á bílaplan og önnur inn á verönd. Sprautulökkuð innrétting og hillur eru í bílskúrnum. Inn af bílskúrnum er geymsla.
Fyrir framan bílskúrinn er steypt bílaplan með hitalögnum í, kynnt með affalli af íbúðarhúsi. 

Annað
- Loft eru tekin upp í helstu rýmum á aðalhæðinni og í öllum rýmum á efri pallinum og klædd með brasilískri furu. 
- Gluggar eru Oregon pine og voru málaðir að utan sumarið 2022. 
- Þak var endurnýjað á árunum 2020 - 2021, sett led lýsing í þakkant og hitakaplar í þakrennur. 
- Gróin lóð og um 60 m² timbur verönd. 
- Geymsluskúr á baklóð, einangraður, um 15 m² að stærð fylgir með við sölu.
- Rafmagnstenglar voru endurnýjaðir 2008 og ný öryggi í töflu árið 2013. Nettenging í öllum svefnherbergjum. 
- Vatnsvörn var borin á útveggi árið 2021. 

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/03/200836.220.000 kr.44.500.000 kr.288.6 m2154.192 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 1978
34.6 m2
Fasteignanúmer
2145865
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.350.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Aðalstræti 63
Skoða eignina Aðalstræti 63
Aðalstræti 63
600 Akureyri
292.2 m2
Einbýlishús
946
410 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Aðalstræti 38
Skoða eignina Aðalstræti 38
Aðalstræti 38
600 Akureyri
239 m2
Einbýlishús
412
594 þ.kr./m2
142.000.000 kr.
Skoða eignina Lögbergsgata 5
Skoða eignina Lögbergsgata 5
Lögbergsgata 5
600 Akureyri
229.2 m2
Einbýlishús
726
567 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Lækjargata 4
Skoða eignina Lækjargata 4
Lækjargata 4
600 Akureyri
247.7 m2
Einbýlishús
1024
476 þ.kr./m2
118.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache