Fasteignaleitin
Skráð 30. okt. 2026

Seljabraut 38

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
133.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
523.204 kr./m2
Fasteignamat
69.600.000 kr.
Brunabótamat
59.200.000 kr.
Mynd af Guðmundur Þór Júlíusson
Guðmundur Þór Júlíusson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1974
4. hæð
Garður
Svalir
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2056243
Landnúmer
113149
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað.
Raflagnir
Endurnýjað að hluta innan íbúðar.
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta.
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta.
Þak
Ekki vitað.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Út frá stofu.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Guðmundur Þór Júlíusson & Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Björt og falleg íbúð á tveimur hæðum með gott útsýni við Seljabraut 38 í Reykjavík. Íbúðin er á fjórðu hæð og er skráð 133,6 fm. Á neðri hæð er eldhús, nýlegt baðherbergi, svefnherbergi og sjónvarpshol. Góður frágangur er á stiga upp á efri hæð íbúðarinnar þar sem gengið er upp að meira stofuplássi og hjónaherbergi. Fallegt útsýni er til norð-vesturs. Eigninni fylgir stórt bílskýli í lokaðri bílageymslu og geymsla. Einnig er sameiginlegt rými fyrir bílaþvott í bílageymslunni.
 
✅ Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 / gj@remax.is
✅ Bókið skoðun hjá Ástþór Reyni í síma 899-6753 / arg@remax.is

 
Nánari lýsing
 
Neðri hæð: Anddyri/hol, eldhús, stofa og borðstofa, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Efri hæð: Opið loftrými, nú nýtt sem skrifstofa, og hjónaherbergi.
 
Anddyri/hol: Gengið er inn í húsið um snyrtilega sameign. Í anddyri íbúðarinnar er innbyggður skápur.
 
Eldhús: Hvít og svört innrétting með dökkum steini á borðum, góðu skápaplássi, LED-lýsingu undir efri skápum og ofni í vinnuhæð. Uppþvottavél og kælir fylgir. Úr eldhúsglugganum er besta útsýni íbúðarinnar til norðausturs.
 
Stofa og borðstofa: Bjart og opið rými með mikilli lofthæð að hluta, opið upp á efri hæð. Parket á gólfi og svalir snúa til suðausturs.
 
Svefnherbergi: Úr holi er gengið inn í rúmgott svefnherbergi með parketi, stórum fataskápum upp í loft og stórum glugga.
 
Baðherbergi: Rúmgott og flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuhengi, upphengt salerni, innrétting og hár skápur með góðu skápaplássi og opnanlegur gluggi.
 
Þvottahús: Inn af baðherbergi. Þar er einnig geymsla undir súð.
 
Efri hæð: Opið loftrými undir súð með glerhandriði og útsýni niður í stofu. Það hefur verið nýtt sem skrifstofa en hentar einnig vel sem sjónvarpshol. Hjónaherbergið er með parketi, panelklæddu lofti og góðum fataskápum, og inn af því er geymsla undir súð.
 
Geymslur: Í kjallara er sérgeymsla (5,1 fm). Innan íbúðar eru auk þess tvær geymslur undir súð sem ekki eru taldar í skráðum fermetrum, svo geymsluplássið er mikið.
 
Sameign og bílageymsla: Innangengt er úr sameign í lokaða bílageymslu, þar sem íbúðinni fylgir rúmgott sérstæði og sameiginleg aðstaða er til bílaþvottar. Í kjallara er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sameignin er öll mjög snyrtileg.
 
Staðsetning: Íbúðin er í barnvænu og grónu hverfi, þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og aðra þjónustu.
 
Endurbætur
 
2018–2019 (sameign): Aðalrafmagnstafla endurnýjuð, teppi á stigahúsi endurnýjuð og sameignin öll máluð.
2022: Nýtt parket á neðri hæð. Veggir og loft máluð, hurðir lakkaðar og skápur málaður með kalkmálningu.
2025: Ljós endurnýjuð í eldhúsi og á efri hæð.
2025: Efri hæð samþykkt og færð inn í eignaskiptayfirlýsingu.
2026: Allir gluggar og gler á framhlið hússins endurnýjuð. Framkvæmdum er lokið og hlutur íbúðarinnar að fullu greiddur.
 
Fasteignamat 2026: 69.600.000 kr.
Fasteignamat 2027: 70.050.000 kr.


Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/12/202134.750.000 kr.49.500.000 kr.97.6 m2507.172 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1986
30.2 m2
Fasteignanúmer
2056243
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
15
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.700.000 kr.

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ólafsvegur 45
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Ólafsvegur 45
Ólafsvegur 45
625 Ólafsfjörður
130,9 m2
Raðhús
413
305 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Hornbrekkuvegur 7
Efsta hæð
Hornbrekkuvegur 7
625 Ólafsfjörður
145,6 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
414
223 þ.kr./m2
32.500.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarvegur 53
Skoða eignina Hlíðarvegur 53
Hlíðarvegur 53
625 Ólafsfjörður
136,6 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
514
263 þ.kr./m2
35.900.000 kr.
Skoða eignina Skógarvegur 6
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Skógarvegur 6
Skógarvegur 6
103 Reykjavík
145,4 m2
Fjölbýlishús
423
928 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin