Fasteignasalan TORG kynnir: Virkilega falleg efri sérhæð með bílskúr, tvennum svölum og frábæru útsýni við Lindarvað 1. Hæðin er skráð 177,2fm þar af 29,9fm bílskúr. Rúmgóð eign sem telur þrjú svefnherbergi, stofu og borðstofu í opnu rými, eldhús, sjónvarpshol/skrifstofu, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Allar nánari upplýsingar veitir Skúli Sigurz löggiltur fasteignasali í síma 869-7014 eða skuli@fstorg.is
Ath. Eignin seldist á fyrsta opna húsi en féll á fjármögnun og er því aftur laus!Nánari lýsing:Anddyri/forstofa er með góðu skápaplássi, flísar á gólfi
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með frábæru útsýni til fjalla, parket á gólfi
Eldhús er með vönduðum innréttingum og góðu skápaplássi, parket á gólfi
Sjónvarpshol/skrifstofa er rými fyrir aftan stofuvegg sem myndi nýtast vel sem sjónvarpshol, parket á gólfi, útgengi á stórar þaksvalir með miklu útsýni
Baðherbergi er flísalagt hólf í gólf, falleg innrétting, baðkar og sturtuklefi
Þvottahús er rúmgott með tengi fyrir þvottavél og þurrkara,góðar innréttingar, flísar á gólfi
Hjónaherbergi er rúmgott með mjög góðu skápaplássi, parket á gólfi
Svefnherbergi 2 gott herbergi með fataskáp, parket á gólfi
Svefnherbergi 3 nýtist í dag sem sjónvarpsherbergi, útgengi á stórar þaksvalir með yndislegu útsýni, parket á gólfi
Garður er grasi gróinn með fínum garðskúr
Bílskúr er með innkeyrsluhurð, tveimur gönguhurðum og virkilega góðum skápum og vinnuborði
Annað Innihurðir eru hækkaðar umfram venjulega hæð, loftskiptikerfi hefur verið komið
Samantekt: um ræðir virkilega góða eign á þessum vinsæla stað í Norðlingaholtinu, tvennar þaksvalir, bílskúr og mikið útsýni. Stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Allar nánari upplýsingar veitir Skúli Sigurz löggiltur fasteignasali í síma 869-7014 eða skuli@fstorg.is