Þorsteinn Ólafs löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna í einkasölu heildarfasteignina Bakkabraut 14 í Kópavogi á 1.532 fermetra leigulóð.
Birt heildarflatarmál heildarfasteignarinnar við Bakkabraut 14 er 694,9 fm. Um er að ræða 463,3 fm atvinnuhúsnæði á jarðhæð með sjö sjálfstæðum fasteignum og 8 stórum innkeyrsludyrum. Þrjár íbúðir eru á 2. hæð og eru þær samtals 231,4 fm.
Fasteignin skiptist í eftirtaldar einingar.
Fasteignanúmer - merking - lýsing:
1. F2235659 - 010101 - 54.4 fm iðnaðarrými á jarðhæð með stórum innkeyrsludyrum jog gryfju, merkt 0101.
2. F2538706 - 010102 - 43,5 fm iðnaðarrými á jarðhæð með stórum innkeyrsludyrum, merkt 0102.
3. F2538707 - 010103 - 104,7 fm iðnaðarrými á jarðhæð með stórum innkeyrsludyrum, merkt 0103.
4. F2538708 - 010104 - 75,8 fm iðnaðarrými á jarðhæð með stórum innkeyrsludyrum, merkt 0104.
5. F2538709 - 010105 - 108 fm iðnaðarrými á jarðhæð með tveimur stórum innkeyrsludyrum, lofthæð 8 - 12 m og gryfju. Merkt 0105.
6. F2538710 - 010106 - 53,6 fm iðnaðarrými á jarðhæð með stórum innkeyrsludyrum og fullri lofthæð, merkt 0106.
7. F2538711 - 010107 - 23,5 fm iðnaðarrými á jarðhæð með stórum innkeyrsludyrum, merkt 0107.
8. F2538712 - 010201 - 70 fm ósamþ. íbúð á 2. hæð, merkt 0201.
9. F2538713 - 010202 - 58,8 fm ósamþ. íbúð á 2. hæð, merkt 0202.
10. F2538714 - 010203 - 102,6 fm ósamþ. íbúð á 2. hæð, merkt 0203.
Þrennar svalir hafa nýlega verið settar upp við íbúðir á efri hæð hússins en svalir þessar voru settar upp á árinu 2025 til að uppfylla kröfur um brunavarnir fyrir íbúðirnar þrjár á 2. hæð.
Burðarvirki byggingarinnar er steinsteypa í veggjum en þak er borið uppi af límtrésbitum.
Frá Fossvogsbrúnni mun Borgarlínan fylgja Bakkabraut að Borgarholtsbraut og þaðan framhjá Sundlaug Kópavogs og menningarhúsunum við Hamraborg.
Allar frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Ólafs löggiltur fasteignasali, í síma 842 2212 eða með pósti á netfangið to@remax.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu 69.900 m. vsk.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Vinsamlega hafið samband við Þorstein Ólafs löggiltan fasteignasala í síma 842-2212 eða með pósti á to@remax.is.