Valborg fasteignasala kynnir: Mjög fallega og vel skipulagða 172 fm 6-7 herbergja efri sérhæð í þríbýlishúsi við Safamýri 39, 108 Reykjavík. Fjögur svefnherbergi, þrjár stofur, fallegur arinn, baðherbergi, geymsla, sérinngangur, bílskúr og bílastæði framan við bílskúr. Mikið endurnýjuð eign og stutt í skóla og íþróttir. Stórar svalir í suður og vestur.Nánari lýsing:Anddyri: Teppalagður stigi upp í íbúð.
Arinstofa: Parket, rúmgóð og björt, stórir gluggar, fallegur arinn.
Sjónvarpsstofa: Parket á gólfi, björt og tengist eldhúsi.
Eldhús: Parkert á gólfi og glæsileg eldhúsinnrétting frá Brúnás. Mjög gott skápa- og borðpláss, eyja, tækjaskápur, innfelld uppþvottavél, spanhelluborð ásamt gufugleypi og ofn í vinnuhæð.
Borðstofa: Parket á gólfi, opin við eldhús og arinstofu. Gengið út á svalir í frá borðstofu.
Herbergisgangur: Falleg sérsmíðuð hurð inn í ganginn. Parket á gólfi, útgengt á svalirnar úr ganginum.
Hjónaherbergi: Parket og fataskápur.
Barnaherbergin eru þrjú öll með parketi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofn, innrétting undir og við handlaug, salerni og gluggi með opnanlegu fagi.
Geymsla: Er gestasnyrting á teikningu. Allar lagnir til staðar og auðvelt að setja WC og handlaug.
Bílskúr: 33,4 fm með rafmagnsopnara og stórum gluggum.
Aðkoma: Bílaplan og gangstétt var endurnýjað árið 2019 og settar hitalagnir.
Garður: Fallegur skjólsæll garður.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara ásamt sameiginlegri geymslu með neðri hæð.
Þvottahús: Mjög snyrtilegt, nýlega búið að setja epoxy á gólfið. Sameiginlegt með neðri hæð.
Húsið: Árið 2020 voru raflagnir og tafla endurnýjað og skipt um raflagnaefni.Búið að endurnýja glugga gler að hluta til í íbúðinni. Húsið var málað og sprunguviðgert árið 2018 og þakið var málað. Dren og skólp var endurnýjað árið 2007 og árið 2019 var það endurnýjað frá húsi út í götu.
Þetta er einstaklega falleg eign í grónu og vinsælu hverfi þar sem stutt er í skóla Álftamýrarskóla, leikskóla og íþróttasvæði), verslanir og þjónustu.
Eignin Safamýri 39 efri hæð er skráð skv. HMS alls 172.1 fm. ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Þar af er bílskúr skráður 33,4 fm.,
Hafið samband og bókið skoðun. Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Steinþórsson Viðskiptafræðingur - löggiltur fasteignasali, í síma 896-5865, tölvupóstur alli@valborgfs.is.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.