Prima fasteignasala kynnir í sölu hæð við Sogaveg 101 um er að ræða 178,5 fm hæð með bílskúr sem hefur verið endurnýjuð á vandaðann hátt á undanförnum árum. Stutt er í alla þjónustu.
Bókið skoðun hjá Óskar Már Alfreðsson lgf - oskar@primafasteignir.is / s 6158200
Nánari lýsing:
Neðri forstofa: Með flísum á gólfi. Þaðan er gengið upp bjartan og rúmgóðan steyptan stiga með parketi. Gengið er niður í sameign frá neðri forstofu.
Efri forstofa/hol: Með sprautulökkuðum klæðaskápum og gólfhita.
Gestasnyrting: Hefur verið endurnýjuð. Flísalagt í gólf og veggi, hvítur sprautulakkaður skápur við vask og upphengt salerni.
Svefnherberg (1) Rúmgott, bjart með gólfhita. Gluggar til suðausturs.
Þvottaherbergi:: Með flísum á gólfi, góð innrétting með skápum, vinnuborð með vask, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og gluggi til norðausturs.
Geymsla/búr: Er staðsett fyrir innan þvottahús. Flísar á gólfi, hillur og gluggi til norðausturs.
Stofa: Er rúmgóð og björt og stórum gluggum.
Borðstofa: Er rúmgóð og björt. Borðstofa er opin inní eldhús og stofu með stóra glugga til suðurs.
Eldhús: með sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu. De Dietrich eldhústæki eru í eldhúsi, s.s. stál bakaraofn, innbyggð uppþvottavél og spansuðuhelluborð. Auk þess er stál háfur, fallegar flísar á vegg og stór gluggi til suðurs. Eldhús er opið við borðstofu og er með gólfhita.
Svalir: Eru rúmgóðar og snúa til suðvesturs.
Svefnherbergi (2) Er rúmgott og bjart. Gluggar til norðvesturs. Herbergið var áður tvö svefnherbergi, auðvelt að breyta því aftur.
Hjónaherbergi (3) er rúmgott með skápum og glæsilegu útsýni til norðurs að Esjunni, Úlfarsfelli og víðar.
Baðherbergi: Er flísalagt með tvöfaldri sturtu, gólfhita og glugga til norðausturs. Endurnýjað 2022-2023
Bílskúr: Er rúmgóður eða 28,8 fermetrar með steyptu gólfi. Heitt og kalt vatn, rafmagn og upphitaður. Hægt að leggja tveimur bílum fyrir framan skúr. Góð aðkoma að bílskúr frá Rauðagerði.
Um er að ræða fjölskylduvæna hæð á góðum stað í Reykjavík - Stutt í alla þjónustu
Allar upplýsingar veitir
Óskar Már Alfreðsson lgf
Prima fasteignasala
Suðurlandsbraut 6 Reykjavík
S 6158200
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.